- Advertisement -

Leiðindakarlar í Suðurkjördæmi

Björn Birgisson í Grindavík er seigur. Hann skrifaði öllum þingmönnum síns kjördæmis:

„Sendi öllum þingmönnum Suðurkjördæmis þessa spurningu:

*******

Reiknar þú með að gefa kost á þér til áframhaldandi þingsetu í næstu kosningum til Alþingis?

Allir þingmenn Suðurkjördæmis spurðir – tekið fram að svörin væru til birtingar.

Hér koma svör þeirra sem vildu tjá sig:

*******

Karl Gauti Hjaltason (M):
„Ég tel það einboðið.“

*****

Oddný G. Harðardóttir (S):
„Ég hef ekki rætt þetta við fjölskyldu mína eða stuðningsmenn í kjördæminu og svara því engu um þetta núna.“

*****

Vilhjálmur Árnason (D):
„Það er ekki tímabært að gefa neitt upp um það núna. Ég er bara fullur eldmóðs í að klára það sem ég var kosinn til síðast.“

*****

Ásmundur Friðriksson (D):
Sá spurninguna, en kaus að svara henni ekki.

*****
Páll Magnússon (D):
Sá spurninguna, en kaus að svara henni ekki.

*****

Silja Dögg Gunnarsdóttir (B):
„Ég hef sannast sagna ekki hugmynd um það. Kemur í ljós þegar nær dregur.“

*****

Smári McCarthy (P):
„Mér finnst ekki tímabært að segja af eða á. Margt getur gerst á einu ári. Bæði er margt spennandi hægt að gera utan þings, en líka mikil vinna eftir innan þings. Sjáum til.“

*****

Ari Trausti Guðmundsson (V):
„Hef ekki íhugað það að neinu marki.“

*****

Birgir Þórarinsson (M):
„Já.“

*****

Sigurður Ingi Jóhannsson (B):
Sá spurninguna, en kaus að svara henni ekki.“

Svörin eru svona og svona. Athygli vekur að Ásmundur Friðriksson, Páll Magnússon og Sigurður Ingi svara allir nákvæmlega eins: „Sá spurninguna, en kaus að svara henni ekki.“ Leiðindakarlar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: