- Advertisement -

Málamiðlunartillögu vísað frá

Kolbrún Baldursdóttir skrifar:
Fundi í skipulags- og samgönguráði var að ljúka þar sem meirihlutinn samþykkti að bæta við göngugötur, svokallaðar sumargötur. Ég reyndi að koma með málamiðlunartillögu um að gerð yrði tilraun með að rekstraraðilar sjálfir stýrðu þessu, opnun/lokun en henni var vísað frá.

Tillaga Flokks fólksins að rekstraraðilar við þær götur sem nú hafa verið gerðar að göngugötum varanlega eða tímabundið, fái að ráða sjálfir hvort götu sé lokað fyrir umferð eða ekki.
Flokkur fólksins leggur til sem tilraunaverkefni að rekstraraðilar við þær götur sem nú hafa verið gerðar að göngugötum varanlega eða tímabundið fái að ráða sjálfir hvort götu sé lokað fyrir umferð eða ekki. Á sólardegi geta rekstraraðilar ákveðið að hafa opið að hluta til eða allan daginn og á öðrum dögum geta bílar ekið göturnar. Skiptar skoðanir eru á þessum lokunum og fjöldinn allur er alfarið á móti þeim. Það hafa kannanir sýnt svo ekki verði um villst. Til að ná lendingu til bráðabirgðar í það minnsta, væri hægt að prófa leið eins og þessa.

Hér er bókun mín við afgreiðslunni
Tillaga Flokks fólksins að rekstraraðilar við þær götur sem nú hafa verið gerðar að göngugötum varanlega eða tímabundið, fái að ráða sjálfir hvort götu sé lokað fyrir umferð eða ekki, hefur verið vísað frá af skipulagsyfirvöldum. Sjálfstæðismenn sátu hjá. Þetta eru kaldar kveðjur frá meirihlutanum til rekstraraðila. Er þeim ekki treyst til að fá í skamman tíma að stjórna því sjálfir hvort hentar að hafa götur opnar eða lokaðar? Hér er verið að leggja til að gerð verði tilraun að þessu tagi. Málið er alvarlegt, hér er valtað yfir fólk, fólk sem á hagsmuna að gæta. Fram hefur margs sinnis komið í könnunum að hér er gengið gegn vilja meirihluta borgarbúa og rekstraraðila. Verslun hefur hrunið í kjölfar lokana nema veitingastaðir og minjagripaverslanir þ.e. þegar ferðamenn voru til staðar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: