Stjórnmál:
Ingibjörg Isaksen Framsóknarflokki skrifar:
„Fyrir nokkrum árum sagði formaður Samfylkingarinnar að það væri ótrúlegt að ríkisstjórn drægi úr stuðningi við skuldsett heimili á tímum verðbólgu og hárra vaxta.
Nú er hún forsætisráðherra.
Og nú á að afnema vaxtabætur, láta barnabætur rýrna að raunvirði og hækka álögur á heimilin.
Það er ekki nóg að tala um að breiðu bökin eigi að bera byrðarnar. Við verðum að horfa á hverjir greiða reikninginn þegar allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar leggjast saman.
Við í Framsókn höfum reiknað dæmin. Þau sýna að höggið getur orðið verulegt og hlutfallslega þyngra fyrir tekjulægri fjölskyldur.
Við getum náð jafnvægi í ríkisfjármálum án þess að svarið sé alltaf nýr reikningur til fólksins í landinu.
Mildum höggið.“