- Advertisement -

Minningarorð um Magnús Þór Hafsteinsson

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, minntist Magnúsar Þórs Hafsteinssonar fyrrum þingmanns, í Alþingi. Minnin Þórunnar fer hér á eftir:

Þórunn Sveinbjarnardóttir
forseti Alþingis.

Sú sorgarfregn barst fyrir skemmstu að Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi alþingismaður, hefði farist í sjóslysi út af Patreksfirði 30. júní, 61 árs að aldri.

Magnús Þór var fæddur á Akranesi 29. maí 1964 og ólst þar upp, sonur hjónanna Hafsteins Magnússonar og Jóhönnu Kristínar Guðmundsdóttur hjúkrunarfræðings. Hann nam fiskeldisfræði við Bændaskólann á Hólum og hélt síðan til Noregs þar sem hann var búsettur um nokkurt skeið og þar lauk hann háskólanámi í fiskeldis- og fiskifræðum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Magnús Þór átti langan starfsferil sem fréttaritari og blaðamaður á íslenskum og norskum fjölmiðlum, þar á meðal við Ríkisútvarpið, og sérhæfði hann sig í umfjöllun um sjávarútvegsmál.

Magnús Þór var kjörinn til þingsetu af framboðslista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi í alþingiskosningunum 10. maí 2003 og sat eitt kjörtímabil fram í maí árið 2007, alls á fimm löggjafarþingum. Lengst af var hann formaður þingflokks Frjálslynda flokksins og kom á þeim tíma að skipulagi þinghaldsins. Síðar gekk Magnús Þór til liðs við Flokk fólksins og var í framboði fyrir hann í þingkosningunum haustið 2016 og einnig 2017 en náði ekki kjöri. Hann var framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins um skeið.

Magnús Þór var afkastamikill rithöfundur og þýðandi auk þess sem hann ritaði talsvert í blöð og tímarit. Hann var áhugamaður um sögu síðari heimsstyrjaldar, einkum siglingar og skipalestir á norðlægum slóðum, og lét eftir sig fróðlegar bækur um það viðfangsefni. Magnús Þór var þátttakandi í stjórnmálum lengi eftir að þingferli hans lauk og var jafnan kappsamur við öll verkefni sem honum voru fengin eða hann tók sér fyrir hendur.

Ég bið þingheim að minnast Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, fyrrverandi alþingismanns, með því að rísa úr sætum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: