
Skoðanakönnun: „Samfylkingin er enn langstærsti flokkurinn á Alþingi skv. þjóðarpúlsi Gallup fyrir janúarmánuð, en hann mælist nú með 31,1% og fengi 22 þingmenn kjörna. Ríkisútvarpið greinir frá.
Sveiflur á fylgi flokkanna frá seinasta þjóðarpúlsi eru litlar sem engar. Mestar eru þær á fylgi Miðflokksins sem mælist nú með 20,8% fylgi og missir 0,9% á milli mánaða. Er flokkurinn þó enn næststærstur.“
Þannig byrjar frétt Moggans um nýjasta Þjóðarpúlsinn.

Eins og sjá má er þetta hárrétt. Samt er uppgjöfin bersýnileg. Mogginn hefur spilað djarft í fyrirsögnum síðustu daga. En ekki hér. Þó Flokkurinn sé í vondum málum.
Flokkur fólksins og Framsókn eru í verulega vondum málum. Framsókn er nú með fimm þingmenn, tvo í norðaustri, einn í norðvestri og tvo í suðukjördæmi. Höllu Hrund Logadóttur og Sigurð Inga Jóhannsson formann flokksins. Hvorugt þeirra næði kjöri yrði kosið nú. Þetta er aumara en aumt.