Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:

Hafnfirsku bæjarstjórarnir Rósa Guðbjartsdóttir og Valdimar Víðisson í Hafnarfirði eru höfundar nýjasta Hafnarfjarðarbrandarans, ef brandari er rétt orðið yfir fádæma klúður þeirra. Haraldur Sverrisson, fyrrum bæjarstjóri í Mosfellsbæ og flokksbróðir Rósu naut góðs af.
Í fullkominni blindni vöruðu þau ekki aðra við að bærinn hefði ekki tryggt lóðir fyrir nýbyggingu Tækniskóla Íslands. Komið var nánast að fyrstu skóflustungu þegar uppgötvaðist að Hafnarfjarðarbær ætti ekki og hefði ekki yfirráð yfir þeim lóðum sem mestu skipti. Hætta varð snarlega við bygginguna við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði.
Nú eru góð ráð dýr. Boðnar eru lóðir við Aðaltorg í Reykjanesbæ og í Úlfarfellsdal í Reykjavík. Kannski næsta rannsóknarefni hversu mikið sá dalur á að rýma. Það er annað mál.
Hafnfirðingar geta eflaust aldrei reiknað hversu skaðinn af andvaraleysi bæjarstjóranna fyrrverandi hefur kostað og á eftir að kosta. Eitt er víst að í reikningsdæmið er ljóst að Mosfellingurinn Haraldur hefur fengið nítján milljónir fyrir ráðgjöf eða „ráðgjöf“.