- Advertisement -

Opið bréf til Guðrúnar Hafsteinsdóttur

Meðan Davíð var…

Kæra Guðrún, það er ekkert nýtt að ráðherrar neiti að ræða við fjölmiðla að loknum ríkisstjórnarfundum. Það hefur gerst margoft. Í raun eru það smámunir miðað við hvernig Davíð Oddsson beitti sér gegn Fréttablaðinu.

Meðan Davíð var forsætisráðherra lét hann boða alla aðra fjölmiðla en Fréttablaðið á blaðamannafundi. Gerði það sem hann gat til að gera okkur sem vorum á ritstjórn Fréttablaðsins erfitt fyrir.

Við ræddum þetta okkar á milli og veltum fyrir okkur hvers vegna hann hagaði sér eins og fýlupúki. Auðvitað lá svarið fyrir. Fréttablaðið var ógn við Moggann og hafði veikt stöðu hans. Við sem stýrðum efnistökum Fréttablaðsins gættum þess að öll sjónarmið kæmust að.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fréttablaðið var
ógn við Moggann. 

Forsætisráðherrann þáverandi virtist ekki hafa stjórn á sjálfum sér. Vel á minnst, hann var líka formaður Sjálfstæðisflokksins, rétt eins og þú ert núna, Guðrún. Svo langt gekk Davíð að hann lagði fyrir ríkisstjórnina fyrsta fjölmiðlafrumvarpið sitt. Ég efast ekki eitt augnablik að þar missteig hann sig illilega sem var upphafið að því sem varð. Hatur hans á Fréttablaðinu og eigenda þess varð honum einna helst að falli.

Hér á eftir er innihald fyrsta frumvarpsins:

Dagblaðakaflinn:

„Útgefandi dagblaðs skal ekki hafa aðra óskylda starfsemi með höndum. Þá er markaðsráðandi fyrirtæki, félagi eða lögpersónu í öðrum rekstri óheimilt að eiga eignarhlut í fyrirtæki, félagi eða lögpersónu, sem hefur útgáfu dagblaðs með höndum. Sama á við um einstaklinga sem eiga ráðandi hlut í slíkum fyrirtækjum, félögum eða lögpersónum. Útgefendum og eigendum dagblaða er á hverjum tíma skylt að veita dóms- og kirkjumálaráðherra upplýsingar er gera honum kleift að meta hvort skilyrðum málsgreinar þessarar er fullnægt.

Heimilt er dóms- og kirkjumálaráðherra að leggja á dagsektir að fjárhæð kr. 50.000 til 500.000 á dag til að knýja á um að ákvæðum 2. mgr. verði framfylgt. Dagsektir þessar verða lagðar á þá aðila sem með ólögmætt eignarhald fara og eru aðfararhæfar.“

Í greinargerðinni segir:

„Í þessari grein er við það miðað að fyrirtæki, félag eða lögpersóna, sem hefur dagblaðaútgáfu sem meginmarkmið skuli ekki jafnframt hafa aðra óskylda starfsemi með höndum.“ Síðar segir: „Enn fremur er gert ráð fyrir að markaðsráðandi fyrirtækjum í öðrum rekstri sé óheimilt að eiga eignarhlut í fyrirtæki í dagblaðaútgáfu.“ Og að lokum er þessi tilvitnun: „Nauðsynlegt er að dóms- og kirkjumálaráðuneytið sem eftirlitsaðili með framkvæmd laga um prentrétt hafi greiðan aðgang að nauðsynlegum upplýsingum um eignarhald útgefenda og eigenda dagblaða til að meta hvort skilyrðum laganna er fullnægt.“

Ljósvakakaflinn:

Útgáfa útvarpsleyfis er háð eftirfarandi skilyrðum um eignarhald:

  1. Óheimilt er að veita leyfi til útvarps til fyrirtækis, félags eða lögpersónu sem hefur að meginmarkmiði rekstur sem er óskyldur fjölmiðlarekstri. Einnig er óheimilt að veita félagi, fyrirtæki eða lögpersónu útvarpsleyfi sem að hluta eða öllu leyti er í eigu markaðsráðandi fyrirtækis í óskyldum rekstri. Þá er óheimilt að veita útvarpsleyfi félagi, fyrirtæki eða lögpersónu, sem hefur með höndum útgáfu dagblaðs eða á eignarhluti í fyrirtækjum í dagblaðaútgáfu, beint eða í gegnum önnur félög, fyrirtæki eða lögpersónur.
  2. Við veitingu útvarpsleyfa til einstaklinga skal útvarpsréttarnefnd jafnframt hafa það atriði í huga, sem nefnd eru í a-lið, þ.á m. hvort aðili eða fyrirtæki honum tengd, eru markaðsráðandi á öðrum sviðum viðskiptalífs eða í dagblaðaútgáfu.
  3. Með umsóknum um útvarpleyfi skulu fylgja upplýsingar sem gera útvarpsréttarnefnd kleift að meta hvort skilyrðum a- og b-liðar sé fullnægt.
  4. Skylt er þeim aðilum sem útvarpleyfi hafa að tilkynna um allar breytingar sem verða á eignarhaldi leyfishafa eða þeirra félaga, fyrirtækja eða lögpersóna sem eignarhlut eiga í leyfishafa. Útvarpsréttarnefnd getur afturkallað útvarpsleyfi, ef breytingar verða á eignarhaldi þannig að í bága fari við ákvæði þessarar málsgreinar.“

Eins og kunnugt er hafnaði Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, að staðfesta lagabreytingar Davíðs. Eftir þetta gekk Davíð bæði haltur og skakkur sem varð til þess að senn var komið að leiðarlokum hjá honum.

Guðrún mér dettur ekki einu sinni í hug að þú viljir fara leið Davíðs í samskiptum við fjölmiðla. Varð að skrifa þetta, og það af gefnu tilfelli.

Guðrún, takk fyrir lesturinn.

Kær kveðja, Sigurjón Magnús Egilsson.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: