- Advertisement -

Persónuvernd stöðvar „njósnir“ TR

Persónuvernd stöðvar „njósnir“ TR

„Persónuvernd brást hratt við og hefur nú sent bréf til Tryggingastofnunar þar sem fram kemur að vinnsla upplýsinga um IP tölur, í þeim tilgangi að upplýsa um staðsetningu einstaklinga, uppfylli ekki kröfur persónuverndarlaga um áreiðanleika persónuupplýsinga,“ segir í tilkynningu frá Öryrkjabandalaginu.

Bréf Persónuverndar er svo hljóðandi:

Persónuvernd vísar til fjölmiðlaumfjöllunar undanfarna daga þar sem fram hefur komið að Tryggingastofnun ríkisins (TR) telji sér heimilt að skoða IP-tölur einstaklinga sem þiggja lífeyri frá stofnuninni til þess að fylgjast með staðsetningu þeirra. Þetta sé gert í þágu reglubundins eftirlits.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Samkvæmt þeim upplýsingum sem birst hafa um málið í fjölmiðlum hefur TR vísað, framangreindu til stuðnings, til niðurstöðu Persónuverndar í máli nr. 2009/635 hjá stofnuninni, en í því máli gerði Persónuvernd ekki athugasemd við skoðun Vinnumálastofnunar á þeim hluta IP-tölu sem hafði að geyma auðkenni þess lands sem IP-talan stafaði frá, þ.e. í rafrænni tilkynningu til stofnunarinnar um atvinnuleysi.

Með vísan til þessa vill Persónuvernd koma ábendingu á framfæri við TR um niðurstöðu stofnunarinnar í nýlegu máli sem einnig varðaði notkun Vinnumálastofnunar á upplýsingum um IP-tölur þeirra sem þiggja atvinnuleysisbætur, en málið er nr. 2018/1718 og var úrskurður í því kveðinn upp 28. nóvember 2019.

Í forsendum úrskurðarins er meðal annars vísað til þess að virkni VPN-tenginga og aðgengileiki þeirra dragi verulega úr áreiðanleika upplýsinga um IP-tölur einstaklinga að því leyti sem slíkar upplýsingar séu nýttar til að staðreyna staðsetningu hlutaðeigandi einstaklings. Þá hafi notkun VPN-tenginga aukist verulega og þekking á þeim sé orðin mun meiri og útbreiddari en áður.

Í ljósi þessa var það mat Persónuverndar að þau sjónarmið, sem byggt var á í eldri niðurstöðum stofnunarinnar um skoðun IP-tölu, ættu ekki lengur við. Var það niðurstaða Persónuverndar að upplýsingar um IP-tölur uppfylltu ekki kröfur 4. tölul. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, hvað varðar áreiðanleika persónuupplýsinga. Var jafnframt lagt fyrir Vinnumálastofnun að láta af notkun upplýsinga um IP-tölur umsækjenda um atvinnuleysisbætur, á meðan ekki væru til úrræði til að staðfesta áreiðanleika þeirra.

Með vísan til alls framangreinds er Tryggingastofnun ríkisins leiðbeint um að taka núverandi verklag sitt við könnun á búsetu einstaklinga til skoðunar með hliðsjón af fyrrgreindri niðurstöðu Persónuverndar.

Ef óskað er leiðbeininga eða álits Persónuverndar á tilteknum atriðum í tengslum við framangreint er Tryggingastofnun ríkisins hvött til þess að senda Persónuvernd erindi þar að lútandi.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: