Stjórnmál:
Össur Skarphéðinsson skrifaði:
„Hildur Sverrisdóttir rauk upp á nef sér þegar Daði fjármálaráðherra talaði loksins tæpitungulaust um ábyrgðarlausa fjármálastjórn Sjálfstæðisflokksins síðustu sjö árin áður en ríkisstjórn Kristrúnar tók við.
Enginn flokkur hefur þó skilið eftir sig annan eins skuldaslóða og Sjálfstæðisflokkurinn. Á sjö árum hlóð hann upp samtals 800 milljarða tapi á ríkið. Þennan flór er Daði nú að moka.
…að stöðu eigin
flokks en snapa
fæting um mál
sem engu skipta…
Í pallborði hjá Samtökum ferðaþjónustunnar sagði Daði efnislega að „þetta lið“ héldi bersýnilega að það væri ókeypis fyrir alla að hlaða fjallháum skuldum á ríkið.
Hildur hefur síðan gengið eiskrandi um miðlana einsog prinsessan á bauninni sem var svo viðkvæm að hún fékk marblett á sinn konunglega afturenda þegar lætt var lítilli baun undir dúnsængurnar sjö sem hún svaf á. Hildur tók sérstaklega nærri sér að vera kölluð „þetta lið“.
Til hvers er „þetta lið“ eiginlega í pólitík? Til að kveina í fjölmiðlum þegar talað er umbúðalaust á hreinni og tærri íslensku? Svona fólk er einfaldlega utan erindis; hefur ekkert að segja við þjóðina.
Á sama tíma eyðir formaður Hildar, Guðrún Hafsteinsdóttir, púðri sínu í ræðustól Alþingis til að skipta sér af innanflokksmálum Flokks fólksins og rambar beint í „skítapott“ Ingu Sæland. Er þessi grátkór ekki með réttu ráði?
Þetta er vitaskuld ástæðan fyrir því að þó ríkisstjórnin sé í miðjum efnahagsskafli þá rýkur Samfylkingin upp í Gallup en Sjálfstæðisflokkurinn dalar. Ríkisstjórnin heldur m.a.s. jöfnu í könnunum þrátt fyrir að vera í efnahagslegum mótbyr.
Stjórnarandstaðan nú er líklega sú slappasta frá aldamótum. Kristrún og kó munu sigla örugg áfram meðan hún er upptekin af því að vera í fýlu yfir sárasaklausum orðum ráðherra eða átökum innan annarra flokka sem þeim koma ekkert við.
Prinsessan á bauninni ætti fremur að huga að stöðu eigin flokks en snapa fæting um mál sem engu skipta…“