- Advertisement -

Ráðherrastarf er ekki félagsmálapakki

Stjórnmál:

Haukur Arnþórsson skrifaði:

Upphrópanirnar gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór vegna >uppljóstrana< Guðmundar Inga eru ekki í nokkru samræmi við tilefnið. Enda þótt hann sé best innrætti alþingismaðurinn í allri þingsögunni varðar málið nokkrar staðreyndir, sem flestir ættu að þekkja.

Flokksformaður velur ráðherra. Það ber með sér skyldur til að sjá til þess að einhver sitji ráðuneyti sem flokkur hans ræður yfir. Líka að viðkomandi sé til þess bær, hafi t.d. fulla heilsu. Þá felur þetta í sér vald til að víkja ráðherra frá. Þessa ábyrgð verður flokksformaðurinn að axla, hvort sem honum er það ljúft eða leitt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er kalt
á toppnum og
á að vera það.

Það er kalt á toppnum og á að vera það. Ráðherra getur hvenær sem er orðið að víkja ef eitthvað alvarlegt á sér stað í hans málaflokki og einnig ef eitthvað – jafnvel ekki svo alvarlegt – kemur upp á varðandi embættisfærslur hans eða háttu. Nú geta menn haldið því fram að allir séu hæfir til að vera ráðherrar – eða að engu skipti hvort þeir hafi starfsþrek eða ekki eða séu líklegir til að fá það aftur eftir veikindi – en hætt er við að meirihluti þjóðarinna sé því fólki ósammála og krefjist þess að ráðherra ráði við starf sitt og hafi starfsþrek.

Ráðherrastarf er ekki félagsmálapakki og ekki gilda um það ráðningarfestuákvæði opinberra starfsmanna. Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur. Enda þótt flokksformaður eigi að sýna eðlilega kurteisi þegar hann rekur ráðherra úr embætti gilda í málinu í sjálfu sér frjálsar ólympískar reglur eins og allir þekkja frá fréttum frá nágrannaríkjunum þar sem alls konar undirferli eiga sér stað.

Forsætisráðherra hefur enga aðkomu að ráðningu eða brottrekstri ráðherra samstarfsflokka – og óheiðarlegt að reyna að sverta hann í málinu. Flokksformaðurinn er einráður.

Mér finnst allt í lagi að Guðmundur Ingi segi sinn sannleika opinberlaga – en spurning hvað fréttamenn eða stjórnmálamenn geta notað málið mikið til að berja sér á brjóst. Þegar upp er staðið geta sumar uppsagnir verið ósanngjarnar, álitamál eða jafnvel réttlætanlegar.

Meira? Ég bæti kannski við þetta ef ég fæ góð andmæli.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: