- Advertisement -

Segir almenning hafa grætt 200 milljarða á tapi Íbúðalánasjóðs

„Varðandi Íbúðalánasjóð er núvirt tap Íbúðalánasjóðs áætlað einhvers staðar í kringum 200 milljarða af útlánastarfseminni. Sá reikningur hefur ekki verið greiddur. Hann mun falla á ríkissjóð í einhverjum hlutföllum af þessum 200 milljörðum á komandi árum. Þessi vandi er núna geymdur inni í ÍL-sjóði,“ sagði fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson.

Hann sagði síðan; „…spegilmynd af þessu tapi ríkissjóðs og hún birtist í lægri vöxtum heimilanna sem losnuðu úr viðskiptum við sjóðinn og njóta í dag lægri vaxtagjalda úti á hinum almenna markaði og það má áætla u.þ.b. krónu fyrir krónu að allir þessir 200 milljarðar séu ávinningur heimilanna af því að hafa losnað úr viðskiptum við Íbúðalánasjóð.“

En er ekki reikningurinn óuppgerður?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: