- Advertisement -

Sjálfstæðismenn rífi sig lausa undan oki Samfylkingarfólks

Stjórnmál:

Arnar Þór Jónsson skrifaði:

„Staðan er þessi: Fyrrum formaður Samfylkingarinnar situr í rauðu úlpunni sinni úti í Brussel og liðsinnir núverandi utanríkisráðherra við að þrýsta á ráðamenn Íslands að leggja til hliðar samningsafstöðu um fullveldi sem Ísland hefur framfylgt vandræðalaust í meira en 30 ár. Núverandi utanríkisráðherra er fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins, en hefur sýnt í verki að hún aðhylltist sjálfstæðisstefnuna aldrei í hjarta sínu og stendur pólitískt nær Samfylkingunni en Sjálfstæðisflokknum. Nokkurn veginn það sama má segja um fyrirrennara hennar í embætti utanríkisráðherra, sem einnig var varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Davíð Oddsson var forsætisráðherra í ríkisstjórninni sem samdi upphaflega við EB (nú ESB) um EES. Í samtali við mig, sem ég birti á prenti 2021, sagði hann skýrlega að án samningsbundins neitunarvalds hefði Ísland aldrei gengið í EES.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú er kominn tími til að sjálfstæðismenn rífi sig lausa undan oki Samfylkingarfólks innan flokks og utan og taki skýra afstöðu gegn tilburðum sem miða að því að skerða fullveldisrétt Íslands undir því falska yfirskini að við höfum undirgengist að lúta forræði gagnaðilans innan EES. Ef Sjálfstæðisflokkurinn tekur ekki harða afstöðu gegn þessu máli þá getur hann ekki staðið undir nafni hér eftir. Það er ekki nóg að tala bara um frelsi einstaklingsins, því Sjálfstæðisflokkurinn var einnig stofnaður til að verja frelsi þjóðarinnar. Ætli flokkurinn að stífa annan vænginn getur hann aldrei aftur náð flugi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: