- Advertisement -

Skammsýni verkalýðsforinginn

Gunnlaugur Ólafsson skrifaði:

„Sólveig Anna talar sem fulltrúi íhalds eða afturhalds. Ömurlegt hlutskipti að taka þátt í því skrumi og hroka gagnvart samstarfi og einingu í álfunni okkar. Já og reyna að svipta þjóðina tækifæri að sjá raunverulegar forsendur í samningi. Leggst á árar með Mogganum að viðhalda þjóðrembu rúllubaggakúltúrs og fákeppni krónuhagkerfis.

  • A. Evrópusambandið er bandalag sjálfstæðra ríkja. Launakjör í einu landi flæða ekki sem smitsjukdómur milli landa.
  • B. Það á að vera öllum ljóst að Evrópusamstarfið skilar efnahagslegum ávinningi. Þar er Ísland skýrt dæmi þar sem EES hefur verið lífæð hagsældar í rúm 30 ár. Annað „sýnidæmi’ er Bretland, þar sem allar hagstærðir þróuðust á verri veg á tíu árum frá Brexit.
  • C. Lifið er ekki bara saltfiskur. Það er skammsýni að verkalýðsforingi sé samstiga „meistaradeildinni“ í að afstaða til samstarfs og einingar í Evrópu byggi eingöngu á fjarhagslegum töflureikni. Lífsljör eru betri í Danmörku en verri í Rúmeníu.
  • D. Hin norræna og evrópska vídd tilveru okkar er það sem við treystum best. Þar er frændsemi og vinátta sem á að vera hornsteinn utanríkisstefnu og vegvísir til framtíðar.“
Þú gætir haft áhuga á þessum

Grein Gunnlaugs er fengin af Facebooksíðu hans.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: