- Advertisement -

„Skil vel sárindi Sjálfstæðisflokksins að vera laus undan valdasprotanum“

Hvers vegna sendi flokkur hennar inn umsókn um framlög frá ríkinu árið 2024 vitandi að hann uppfyllti ekki skilyrði laganna?“

Jens Garðar Helgason.

Hvers vegna sendi flokkur hennar…

„Áður en ákvörðun um þessa eftirgjöf ríkissjóðs var tekin fór hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra mikinn í opinberri umræðu og lýsti því m.a. yfir að flokkur hennar hefði fyrst orðið þess áskynja í febrúar 2024 að hann uppfyllti ekki skilyrði laga fyrir styrkjum, eða eftir að flokkurinn fékk seinast greiddan styrk í trássi við lög. Síðan hefur hins vegar komið í ljós að Ríkisendurskoðun upplýsti Flokk fólksins með tölvupósti þann 14. nóvember 2023 að hann uppfyllti ekki skilyrði laga um starfsemi stjórnmálasamtaka og til greiðslu styrkja, eða tveimur og hálfum mánuði áður en flokkurinn fékk greidd framlög fyrir árið 2024. Engu að síður sótti Flokkur fólksins um styrk samkvæmt lögum árið 2024 þrátt fyrir að vita það með vissu að flokkurinn uppfyllti ekki skilyrði laganna.

Því vil ég spyrja hæstvirtanfélags- og húsnæðismálaráðherra: Hvers vegna sendi flokkur hennar inn umsókn um framlög frá ríkinu árið 2024 vitandi að hann uppfyllti ekki skilyrði laganna?“

Það eru allir glaðir í Flokki fólksins…

„Staðan er einfaldlega þessi: Flokkur fólksins hefur fengið sínar greiðslur eins og aðrir, eins og Sjálfstæðisflokkurinn sem var ekki heldur að uppfylla þau lagalegu skilyrði sem lágu að baki því að heita stjórnmálaflokkur en ekki félagasamtök. Og til gamans má líka geta þess að í bankakerfinu okkar núna, þar sem við eigum að fylla út svokallaða áreiðanleikakönnun, er hvergi að finna möguleika fyrir neitt sem heitir stjórnmálaflokkur að uppfylla þau skilyrði að fylla út þá áreiðanleikakönnun, heldur er félagasamtökum eingöngu boðið að gera slíkt,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins.

„Ætli þetta megi ekki flokkast undir það að menn átti sig kannski ekki alveg á alvarleika málsins vegna að þessi löggjöf hafði verið í gildi og flokkar höfðu fengið — ekki bara Flokkur fólksins heldur og fleiri stjórnmálaflokkar. En hátttvirtur þingmaður getur verið afskaplega ánægður með að þessum málum hefur verið komið á eðlilegan rekspöl. Það eru allir glaðir í Flokki fólksins eins og í hinum flokkunum sem ekki höfðu formsins vegna fylgt þessum breytingum. Ég veit því ekki alveg á hvaða vegferð háttvirtur þingmaður er núna í maí, þetta er að baki.

Við í Flokki fólksins, eins og háttvirtur þingmaður segir: Jú, við erum afskaplega ánægð í þessari ríkisstjórn. Jú, við erum samstiga. Og jú, ég skil vel sárindi Sjálfstæðisflokksins að vera laus undan valdasprotanum. Og jú, við erum afskaplega fegin að vera einmitt laus við hann úr valdastóli.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: