- Advertisement -

Snerting við almættið

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Á meðfylgjandi mynd held ég á fertugasta afkomanda mínum. Ég held að ekkert geti fært okkur nær almættinu, (hvað sem það nú er) en sú athöfn að hjúfra að sér og veita hjálparvana ungviði skjól.

Tilfinningin og umhyggjan sem því veldur er eðlishvöt. Hún er verndarhvöt og öflugasta og ljúfasta hvöt allra lifandi kvikinda. Þekktust er hún undir heitinu móðurást. Hún er skýringin á gleði okkar af því að vernda og hjálpa mönnum og málleysingjum sem geta ekki hjálpað sér sjálf. Hvolpar, kettlingar, fuglsungar, lömb, folöld og annað ósjálfbjarga ungviði vekja meðfædda verndarhvöt okkar og löngun að koma þeim til hjálpar. Umhyggja og samúð  með þeim sem erfitt eiga og löngun okkar að koma þeim til hjálpar er af sama toga. Umbun okkar er þá staðgreidd með þakklæti þeirra sem njóta góðs af.  

Af hverju þessi skrif ?

Þegar ég hjúfraði að mér þessu mánaðargamla kríli sóttu að mér áleitinar spurningar.

Hvaða veröld bíður þessa barns?  Pútín hefur grobbað af því að hann eigi mikið betur þróaðar kjarnorkusprengjur en stuðningsríki Úkraínu og hann muni ekki hika við að nota þær.  Bretar og Frakkar eru að fá flugvélar sem geta flutt kjarnasprengjur sem engu lífi þyrma.

Bandaríkin hafa sagt sig frá samtökum þjóða sem vilja draga úr hlýnun jarðar og fyrirsjáanlegum afleiðingum hennar á allt líf á jörðinni. Ísland munu þjást af þeirri hlýnun eins og aðrir.

Þessi heimskulega Bandaríska ákvörðun vakti í mér þörf til að skrifa þessa grein mína.  

Langjökull

Í bókinni “JÖKLAR Á ÍSLANDI”  eftir Helga Björnsson er sagt fyrir um afleiðingar hlýnunarinnar.

Þar kemur fram, að þegar barnið sem ég hjúfra að mér verður fimmtugt (2075) þá hefur Langjökull klofnað í tvennt við Hvítárvatn. Auðnist barninu að ná þeim aldri sem ég er á í dag, þá verður Langjökullinn horfinn að fullu. 

Mörgum árum áður en Langjökull hverfur verða afleiðingarnar á Íslandi orðnar illbærilegar.  Allt heita vatnið á höfuðborgarsvæðinu kemur frá jöklinum. Dr. Pétur M. Jónasson segir vatnið vera 10 ár á leiðinni aðrir tala um 20 til 30 ár. Á þessu ferðalagi kemst vatnið á átta km. dýpi og í snertingu við heitan jarðmöttulinn og kemur svo hvæsandi heitt upp, til dæmis á Nesjavöllum og víðar. 

Ef barnið sem ég hjúfra að mér nær mínum lífaldri eins og hann er nú, þá blasir við því og öðrum Íslendingum að þessi hringrás heita vatnsins okkar heyri að mestu sögunni til – og hvað þá? 

Hofsjökull

Úr Hofsjökli koma Þjórsá og Blanda með allar sínar stórvirkjanir, einnig Héraðsvötnin.

Ef við notum tímatalið um líftíma Langjökuls þá má segja að ekki á morgun heldur hinn þá hverfi Hofsjökull hann er nú 890 ferkílómetrar og bráðnar hratt og hverfur eins og Langjökull.

Þegar þar að kemur sem óhjákvæmilegt er þá þurfum við að geta tekist á við það. Besta leiðin til þess er að ausa fjármunum í stofnanir og einstaklinga sem kunna til þeirra verka.

Til dæmis. Hvernig getum við geymt vaxandi vetrarúrkomu sem nú geymist í jöklum landsins.

Es: Ég legg til að þjóðin opni augun og þegar við ökum fram með Blöndu eða yfir brúna á Þjórsá þá segjum við upphátt:  Þarna fer nú Hofsjökull á fleygiferð í hafið og kemur ekki aftur.                   

Höfundur er rafvirkjameistari.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: