- Advertisement -

Sóleyju blöksrar framganga Vigdísar

Herferðin hefur staðið yfir óslitið frá kosningum.

Vigdís Hauksdóttir hélt áfram ófrægingarherferð sinni á hendur Helgu Björgu Ragnarsdóttur í morgunútvarpinu í morgun. Herferðin hefur staðið yfir óslitið frá kosningum, jafnt í fjölmiðlum sem hér á Facebook þar sem konan hefur birt tugi stöðuuppfærsla með ýkjum og lygum um störf Helgu Bjargar.
Í morgun hélt Vigdís því fram að Helga Björg hefði verið dæmd fyrir óviðeigandi framkomu við starfsmann borgarinnar og að hún sjálf hefði komið honum til varnar. Hvort tveggja er rangt. Reykjavíkurborg (ekki Helga) var dæmd til að draga til baka veitta áminningu, um það eitt snérist dómurinn. Vigdís Hauksdóttir kaus samt sem áður að blása málið upp, fjalla um það sem eineltismál og vega þannig að starfsheiðri og persónu Helgu í þeim eina tilgangi að upphefja sjálfa sig á pólítískum vettvangi. Vigdís kom starfsmanninum ekki til neinna varna, enda var dómur fallinn, borgin hafði gengist við honum og uppþot Vigdísar breytti engu þar um.
Sem fyrrverandi forseti borgarstjórnar blöskrar mér framkoma Vigdísar í garð embættismanna og tek undir álit siðanefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sem framganga Vigdísar er harðlega átalin. Það er með öllu óbærilegt að sjá hæft og vandað starfsfólk hrökklast úr ráðhúsinu vegna popúlískra aðgerða stjórnmálafólks sem þekkir ekki valdmörk sín. Þetta er bara eitt dæmi af mörgum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: