- Advertisement -

Starfshættirnir séu á lágu og ljótu plani

Ef okkur finnst þingmenn vera dónar, þá eru þetta okkar dónar. Ef okkur finnst þeir vera vitlausir, þá eru þetta okkar vitleysingar.

Stjórnmál:

Arnar Þór Jónsson skrifaði:

„Inga Sæland kann að syngja lög, en hún er ekki á heimavelli þegar kemur að því að semja lög. Inga getur sungið „Simply the best“ með stæl, en það er nákvæmlega ekkert „stællegt“ að tala eins og götustelpa í ræðustól Alþingis eða senda stríðsyfirlýsingar í nafni „Valkyrjanna“ til manns sem liggur á sjúkrahúsi eftir erfiða hjartaaðgerð. En þótt starfshættirnir séu á lágu og ljótu plani þá er vert að minna á að þetta kusu Íslendingar yfir sig sjálfir í síðustu alþingiskosningum og hvort sem okkur líkar betur eða verr, þá er þetta fólkið sem fer með völdin í landinu – enn um sinn a.m.k.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ef okkur finnst þingmenn vera dónar, þá eru þetta okkar dónar. Ef okkur finnst þeir vera vitlausir, þá eru þetta okkar vitleysingar. Þetta er gallinn – en kannski kosturinn – við lýðræðið: Það gefur alls konar fólki færi á að tala / syngja sig inn á þing. Platón sjálfur mun hafa viðurkennt áður en yfir lauk að stjórn vitringa væri ekki besta stjórnarformið og að rétt væri að leyfa fólki að velja úr flóru mannlífsins í bland við „beturvitana“.

Á Íslandi eru hlutföllin mögulega öfug nú um stundir, en þetta eru þó, hvað sem öðru líður okkar kjörnu fulltrúar – okkar yfirvöld. Að því sögðu er rétt að undirstrika að Íslendingar hafa ekki gert ESB að yfirvaldi hér á landi og að ESB hefur þ.a.l. engan rétt til að gera tilkall til þess að setja Íslendingum lög sem gangi framar lögum frá Alþingi ef þetta tvennt stangast á.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: