Seðlabankinn:
Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri var til viðtals í Hádegismóum. Þar sagði hann meðal annars um kjarasamninga:
„Við getum búið til þær efnahagsaðstæður þar sem að verður ekki áhugi fyrir að segja þeim upp, það er að segja að búa til nógu mikinn slaka í þjóðarbúinu þannig að atvinnuleysi verði orðið það nógu mikið að það verði ekki áhugi fyrir að segja upp þessum samningum.“
Hvað er maðurinn að segja? Er það svo að stjórnendur Seðlabanka Íslands liggi á launráðum gegn vinnandi fólki? Sitja stjórnendur Seðlabankans með stýripinna og búa til aðstæður, einkum vondar?
Meira hér: „[hann] bjó til þennan slaka sem varð í þjóðarbúinu, hefur orðið, meðal annars með það að markmiði að reyna að tryggja það að samningum yrði ekki sagt upp.“
Á mbl.is segir einnig: Þórarinn fagnaði niðurstöðunni um áframhald samninganna og sagði formenn félaganna í svokallaðri breiðfylkingu eiga hrós skilið fyrir mat sitt á stöðunni. Hann lagði þó áherslu á að það mat hefði ráðist af efnahagsaðstæðum sem Seðlabankinn hefði átt þátt í að skapa.
„Það er í þeim aðstæðum sem við höfum þá átt þátt í að búa til,“ sagði hann.
Næsta verkefni væri að sjá til þess að verðbólga og verðbólguvæntingar lækkuðu í samræmi við það sem bankinn gerði ráð fyrir. Núverandi vaxtastig væri að mati bankans nægilegt til þess, en frekari aðgerðir kæmu til greina ef forsendur breyttust.
„Við erum líka alveg tilbúin til að stíga frekari skref ef það er að breytast.“
-sme