Valið efni úr Heima er bezt / áður birt í ágúst 1961.
Frásöguþáttur skrifaður af Halldóri Ármannssyni.
Bæði fyrir og eftir síðastliðin aldamót voru mjög tíðar vetrarferðir á milli Borgarfjarðar eystra og Seyðisfjarðar, einkum þó áður en verzlun var sett á laggirnar á Borgarfirði, sem var árið 1875, að Þorsteinn Jónsson (Norðfirðingur) keypti borgarabréf, reisti allmiklar byggingar á Bakkagerði og fór að verzla þar.
Áður hafði Gránufélagsverzlun á Vestdalseyri flutt vörur að sumrinu til á Borgarfjörð; var þeim skipað upp í vöruskemmu, sem félagið átti og skipt fljótlega upp á milli þeirra, sem verzluðu við félagið. I þessum vetrarferðum báru menn oft þunga bagga, jafnvel allt að 80 pundum, þótt fjöllin séu brött og erfið yfirferðar, einkum úr Seyðisfirði upp á Hjálmárdalsheiði.
Í þessum ferðum slógu menn oft í félag og fóru margir saman — jafnvel einir 10—20 í hóp. Einkum mun það þó hafa verið, þegar færð var þung. Gátu menn þá meira skipzt á um að fara á undan — leggja slóðina — svo þótti þetta öruggara, ef í illt slægist með tíðina. Oft var gist í Loðmundarfirði, einkum þó í skammdeginu, því að venjulega fóru einhverjir fyrir jólin. Þá fóru menn fyrir páskana líka og reyndar á hvaða tíma sem var, þegar nauðsyn krafði, því að oft vantaði nú ýmislegt í verzlunina á Borgarfirði af því, sem fólk hvorki vildi né gat verið lengi án, svo sem kaffi, sykur, hveiti, grjón, rúsínur, léreftspjötlu, tvist, tvinna, tóbak og hitt og annað bæði ætt og óætt, jafnvel brennivín, ef til stóð að halda brúðkaupsveizlu eða einhver meiriháttar fagnaður var í vændum.
Eins og getið hefur verið hér að framan gistu Borgfirðingar oft í Loðmundarfirði, þegar þeir fóru þessar ferðir, einkum þó á bæjunum Stakkahlíð og Sævarenda og stundum fóru sumir inn í Klyppsstað og út í Seljamýri. Er ánægjulegt að geta minnzt þess, hve tekið var með mikilli alúð, vinsemd og nærgætni við þessum ferðamönnum á áðurnefndum bæjum og víðar, hvernig svo sem þeir voru til reika, hraktir, blautir, þreyttir, svangir og þyrstir, eða eins og ferðamaður getur á margvíslegan hátt orðið hjálpar þurfi.
Ekki er mér kunnugt um, að menn hafi oft villzt á þessum fjallvegum, þarf þó að hafa fulla gætni á með það í dimmviðrum. Tveir menn hafa samt orðið úti á milli Húsavíkur og Borgarfjarðar og einn á Neshálsi, að ég man, síðan um aldamótin 1900, og heyrt hef ég minnzt á, að þrír Borgfirðingar hafi einu sinni villzt út á Þriggjahnúkafjall sunnanvert við Kækjudal, er þeir komu Kækjuskörð af Seyðisfirði. En það er hættuleg villa, ekki síður en sú villa, sem um getur í frásagnarþætti þessum.
Það var fyrir páskana 1902, að tveir unglingspiltar voru sendir úr Borgarfirði á Seyðisfjörð eftir einhverju, sem vanhagaði um. Það voru þeir Jón Þorsteinsson á Gilsárvöllum og Steinn Ármannsson í Gilsárvallahjáleigu ( nú Grund). Voru þeir þá 17 ára gamlir, báðir efnilegir unglingar og orðnir ýmsu vanir. Þeir tóku daginn snemma, fóru suður Kækjuskörð og Hjálmárdalsheiði, sem leið Iiggur til Seyðisfjarðar, og inn í kaupstað. Luku þeir þar erindum sínum, fóru út á Vestdalseyri um kvöldið og gistu þar. Morguninn eftir héldu þeir heim á leið aftur í sæmilegu veðri. Komust þeir klakklaust yfir Hjálmárdalsheiði að Sævarenda. Þar var þeim boðið í bæinn og þágu þeir það, þar eð þeir voru orðnir þurftugir fyrir bæði hressingu og stundarhvíld. Töfðust þeir við þetta æði lengi. Fréttu þeir þar, að tveir sykurtoppar, sem Hannes húsbóndi Steins átti, hefðu verið sendir sjóleiðis að Neshjáleigu (nú Sléttu). Lögðu þeir nú lykkju á leið sína eftir sykurtoppunum þangað út eftir. En þegar komið er svo langt út með firði að norðan, er orðinn mjög langur krókur að fara Kækjuskörð til Borgarfjarðar. Aftur er minna úr leið, ef farinn er Nesháls til Húsavíkur, en með því að fara þá leið, verða fjallvegimir þrír, sem þarf að fara yfir. Bættu þeir nú svkurtoppunum við bagga sína og höfðu nú 40 pund hvor að bera. Var nú komin utan stinnings-gola og þoka á fjöllin og líka orðið áliðið dags. Með því að útlitið var ekki sem bezt, vildi bóndinn í Neshjáleigu helzt, að þeir félagar yrðu um nóttina, en piltar vildu ekki annað heyra en komast til Húsavíkur um kvöldið. Báðu þeir um fylgd upp á hálsinn, því að hvorugur hafði farið hann áður. Héldu þeir svo af stað, en eftir því sem ofar kom í fjallið versnaði veðrið því meir. Húmaði og af kvöldi og moltaði niður snjó. Var þeim fylgt upp á melhól, sem er rétt neðan við skarðið, sem leiðin liggur um til Húsavíkur, og skildi fylgdarmaðurinn þar við þá. Á milli melhólsins og skarðsins er svolítil dæld og hallar undan fæti ofan í hana, áður en farið er upp í skarðið. Vita þeir piltar ekld annað en þeir séu að fara ofan í Húsavík, en hafa sennilega gengið eins og hálfhring kringum hólinn og lentu ofan í Loðmundarfjörð aftur. Var nú kominn moldöskubylur, svo að ekkert sást. Á leiðinni ofan heyrðu þeir hó og köll einhvers staðar utan úr sortanum, en gátu ekki áttað sig á, hvaðan það kom, enda sjálfir rammvilltir.
Þetta sama kvöld eða um nóttina varð úti á hálsinum aldraður maður, sem Jóhann hét. Var hann á leið til Seyðisfjarðar, sendur frá Desjarmýri eftir einhverju fyrir páskana; hefur hann aldrei fundizt.
Þennan vetur, 1902, var mikill ís fyrir Norður- og Austurlandi landfastur inn á víkur og voga frá því seinni part vetrar og fram á vor; t. d. voru tveir drengir sendir rétt fyrir krossmessuna með kindur þvert yfir Borgarfjörð, á ísnum, frá Geitavíkurtanga og að Höfn. Tilgáta heyrðist um, að Jóhann mundi ef til vill hafa komizt af fjallinu og villzt út á ísinn, en aldrei hefur vitnazt neitt um það.
Gamall orðskviður segir: „Ekki verður feigum forðað né ófeigum í hel komið.“ Þegar þeir félagar, Steinn og Jón, voru komnir niður úr brattanum, vissu þeir ekki betur en þeir væru að fara út í Húsavík. Sjá þeir þá allt í einu Ijóstýru næstum hjá sér. Viku þeir sér að ljósinu, reyndist það þá vera í fjósglugga utanvert í bæjarþorpinu í Neshjáleigu, og var verið að mjólka kýrnar. Bæinn sáu þeir ekki, fyrr en þeir næstum þreifuðu á honum. Stefnan sem þeir piltar hafa haft virðist hafa verið út og ofan að sjó fyrir utan alla bæi í Loðmundarfirði. Ljóstýran í fjósglugganum varð hins vegar til þess, að þeir rákust á bæinn. En þá var maðurinn, sem fylgdi þeim, að skafa snjóinn af sér í bæjardyrum.
Er ekki að orðlengja það, að hvorir urðu nú öðrurn fegnir. Piltarnir fengu þarna góða gistingu, en gamla spakmælið rættist enn einu sinni, að „enginn ræður sínum næturstað“.
Sama veðrið hélzt alla nóttina og þangað til kl. um 3 daginn eftir að birti allvel upp.
Lögðu þeir nú áftur á hálsinn, piltar, og fylgdi Jón bóndi (Jón Jónsson frá Úlfsstöðum) þeim í annað sinn upp og nú alveg upp í skarðið og skildi þar við þá. Er þeir komu fram úr skarðinu og sáu til Húsavíkurheiðarinnar, var þar að sjá í hríðarsorta og farið að kófa. Lá nú opið fyrir að víkja stefnunni til hægri og ná til bæja í Húsavík. En með því að enn var mikið eftir af degi og þeir félagar kappsfullir að komast heim, lögðu þeir til heiðarinnar beinustu leið fyrir innan Dalland, en það er alllangur vegur. Er þeir nálguðust heiðina, var komið slæmsku veður, með snjókomu, og ófærðin jókst óðum. Samt gekk þeim allvel yfir sjálfa heiðina og voru þeir á réttri leið svo lengi sem þeir höfðu vörður að fara eftir, en er þeim sleppti, vissu þeir ekki hvar þeir fóru. Með þeim piltum var stór hundur mórauður að lit, sem Möndull hét, mesti vithundur, reyndur að ratvísi í dimmviðrum, fjárhundur í bezta lagi. Sást hann oft á sumrum skilja geldfé frá kvíaám, og fleira var haft til marks um vitsmuni seppa. Hafði hann alltaf forustuna. Er þeir höfðu lengi farið svona í óvissu, en samt á eftir seppa, því að hann kom öðru hverju til baka á móti þeim piltum, ef þeir gátu ekki fylgt honum nógu fast eftir — komu þeir að gili allmiklu. Klöngruðust þeir yfir það en er þeir komu á gilbarminn hinum megin varð fyrir þeim stór steinn. Ekki þekktu þeir steininn eða gátu getið sér til um, hvar hann væri. Hefur þó Jón sennilega verið búinn að fara í fjárleitir um þessar slóðir í einhver skipti. Með því að þarna í gilbarminum var dálítið skjól frá steininum, settust þeir þar niður til að hvíla sig og ráða ráðum sínum. Stakk nú Jón upp á, að þeir tækju af sér baggana og létu þá upp á steininn, því að auðvelt mundi að finna þá þar, þegar upp birti; sáu þeir sitt óvænna að halda lengur áfram og kom saman um að grafa sig í fönn þama í gilbarminum. Kröfsuðu þeir sig ofan í skaflinn, þar sem þeir vora, og var fennt yfir þá eftir litla stund. Sennilega hefur þeim fundizt kuldaleg vistin þarna og gistingin ekki fýsileg fyrir sig þreytta, sveitta og svanga.
Segir nú Steini við Jón: „Heyrðu, Nonni minn, ég hef heyrt talað um, að grafi menn sig í fönn, megi þeir hreint ekki sofna, því að þá vakni þeir ekki aftur“. Anzaði Jón þessu á þá leið, að það mundi þá vera eins gott fyrir þá að brölta áfram eitthvað lengur. Það mundi varla vera meiri óvissa en að leggjast hér fyrir, og rifu þeir sig sem skjótast upp úr bæli sínu aftur. Bandaði Jón svo staf sínum við hundinn og sagði: „Farðu heim, Möndull“. Seppi lét ekki segja sér þetta tvisvar, en lagði óðara af stað og piltar á eftir; höfðu þeir nú mun minni. ófærð. Þegar þeir höfðu fylgt seppa eftir um stund, komu þeir að tóftarbroti, sem þeir könnuðust við; eru það gamlar beitarhússtættur á syðri bakka Lambadalsár vestur af Setbergi. Glaðnaði nú heldur yfir drengjum og jókst þeim bæði kjarkur og þróttur. Hröðuðu þeir nú ferð sinni á eftir hundinum norður um Kollutungur og Króarholt í Hvannstóð. Var þá hánótt. Vöktu þeir upp húsbóndann, Einar Einarsson. Vildi hann þeir yrðu til morguns, en ekki voru þeir félagar fáanlegir til þess. Hressingu þágu þeir þó, en slóraðu lítið, héldu svo á eftir rakkanum út Hólalandsblá og heim, en það er nærri klukkustundar gangur að GilsárvöIIum, og var kl. 3 er þeir komu heim til sín. Voru þeir þá búnir að vera 12 klukkustundir frá Neshjáleigu, en í sæmilegu leiði er það varla yfir 4—5 tíma gangur. Heimafólk var farið að verða áhyggjufullt út af piltunum, og Jón bóndi á Gilsárvöllum lá þá vakandi í rúmi sínu og hafði ekki komið blundur á brá, það sem af var nætur.
Snerust nú allar áhyggjur í fögnuð, hundurinn fékk verðskuldað þakklæti og ferðamennirnir að njóta drauma sinna langt fram á morgundaginn.
Heimildarmenn fyrir framanskráðri sögu eru piltarnir báðir, sem ferðina fóru.