- Advertisement -

Svala Björgvins er alsæl enda aftur komin á fast: „Við erum mjög sátt”

Við erum mjög sátt. Ég er mjög hamingjusöm,“ segir tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir í samtali við Fréttablaðið um nýtt ástarsamband; hún og Alexander Alexandersson hafa verið að stinga saman nefjum undanfarnar þrjár vikur; eru komin á fast.

Svala er glæsileg kona og frábær tónlistarkona. Fann ástina á nýjan leik í faðmi Alexanders.

Alexander er bróðir Freys Alexanderssonar, knattspyrnuþjálfara.

Nokkur aldursmunur er á parinu flotta – en Alexander er fæddur árið 1998 en Svala er fædd árið 1977. Skiptir það þó engu máli því ástin spyr ekki um aldur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svala sagði í sam­tali við Smart­land að þau hafi kynnst á skemmti­stað og séu fyrst og fremst að njóta lífs­ins.

Ekki er langt síðan Svala sleit sambandi sínu og Kristjáns Ein­as Sig­ur­björnssonar, eftir að hann var handtekinn á Spáni.

– Trausti


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: