„Við skulum ekki gleyma að þetta eru þau tvö lönd sem við áttum í mestu milliríkjadeilum við á seinni hluta síðustu aldar, þorskastríð og smugudeilu.”
Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viððreisnar, skrifaði:
„Í upplýsingaóreiðunni um Evrópusambandið er mikilvægt að hlusta á þá sem þekkingu hafa á sambandinu eins og dr. Indriða Benediktsson sem hefur nýlega látið af störfum, en hann starfaði í 30 ár hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, við vísinda- og heilbrigðis-samstarf þess. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur verið embættismaður hjá Evrópusambandinu.
Óli Rúnar Ástþórsson skrifar á Vísi: Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“
Það þarf bara að semja um veiðar úr…
Þetta er haft eftir Dr. Indriða Benediktssyni í fróðlegu viðtali sem birtist í Heimildinni 1. ágúst s.l. . „Núna er gríðarlega gott tækifæri sem mun aldrei koma aftur,“ er haft eftir honum í viðtalinu.
Í viðtalinu lýsir Indriði þeirri skoðun sinni að Ísland komi ekki til með að þurfa að breyta neinu í sinni fiskveiðistjórn nema vilja það. „Ef Ísland gengur í Evrópusambandið þá mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi.“
Það þarf bara að semja um veiðar úr svokölluðum flökkustofnum fiska sem synda milli landanna og það gerum við nú þegar, en með aðild gæti Ísland verið leiðandi í því að semja um þetta fyrir ESB gagnvart öðrum löndum.“
Og svo: „En ef Ísland fer ekki í Evrópusambandið fyrr en eftir að Bretland kemur aftur þangað og Noregur hefur gengið í það, þá höfum við engan séns. Við skulum ekki gleyma að þetta eru þau tvö lönd sem við áttum í mestu milliríkjadeilum við á seinni hluta síðustu aldar, þorskastríð og smugudeilu. Núna er gríðarlega gott tækifæri sem mun aldrei koma aftur.”
Skrifin birti Benedikt á Facebook.