- Advertisement -

„Tel að við getum ekki gengið inn í ESB“

Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, er til viðtals í Mogga dagsins. Hér fer niðurlag viðtalsins:

Telur þú að það hefði veigamikil áhrif á íslenskan sjávarútveg ef við færum inn í sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna?

„Ég skil ekki að nokkrum manni detti það í hug að fara að gefa eftir forræði okkar yfir fiskveiðiauðlindinni. Það er bara óskiljanlegt í mínum huga. Ég segi það bara aftur að ég tel að við getum ekki gengið inn í ESB nema við höfum full og varanleg yfirráð yfir auðlindinni til eilífðar,“ svarar formaðurinn.

Síðast þegar Ísland gekk til viðræðna við sambandið tókst ekki að opna þann kafla sem sneri að sjávarútvegi og því fór sem fór.

„Þessi frjálsi fjármagnsflutningur, að erlend fyrirtæki geti keypt sig inn í sjávarútvegsfyrirtækin hér, þá erum við búin að tapa yfirráðum yfir auðlindinni og ég get ekki hugsað þá hugsun til enda. Kollegar mínir í Bretlandi og Írlandi gjalda varhug við því að við förum þarna inn miðað við þeirra reynslu. Þar er sjávarútvegurinn veigaminni atvinnugrein en hér, þannig að við höfum meiri hagsmuni af sjávarútvegi en þær þjóðir sem eru innan ESB,“ segir Árni að lokum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: