- Advertisement -

SDG: „Þetta er rétt hjá Ólafi Ragnari“

„Atkvæðagreiðsla um hvort fólk vilji taka upp viðræður um aðild að ESB er atkvæðagreiðsla um hvort vilji sé til að „ganga í ESB eins og það er” eins og fulltrúar sambandsins orða það.“

Sigmundur Davíð gunnlaugsson.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, skrifaði:

„Þetta er rétt hjá Ólafi Ragnari.

Það að fram fari önnur atkvæðagreiðsla er bara yfirlýsing þeirra stjórnmálamanna sem hana gefa.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eins konar kosningaloforð eins og þau sem sömu stjórnmálamenn gáfu fyrir þingkosningar, „engar skattahækkanir”, „ESB ekki á dagskrá” osfrv.

Fulltúar Feneyjanefndarinnar sem voru til ráðgjafar vegna atkvæðagreiðslunnar lögðu mikla áherslu á að ekki mætti setja atkvæðagreiðsluna nú í samhengi við hugsanlega atkvæðagreiðslu síðar enda væri það önnur ákvörðun, óháð þessari.

ESB tekur ekki við umsókn öðruvísi en að hún snúist um áform og vilja umsóknarríkisins til að ganga í sambandið.

Atkvæðagreiðsla um hvort fólk vilji taka upp viðræður um aðild að ESB er atkvæðagreiðsla um hvort vilji sé til að „ganga í ESB eins og það er” eins og fulltrúar sambandsins orða það.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: