- Advertisement -

Ólafur Ragnar og sómatilfinningin

Jóhann Þorvarðarson skrifar:

Fyrrverandi forseti má hafa sínar skoðanir, en þegar þær eru settar fram sem rógur um að Alþingi kunni að svíkja þjóðina er verið að stíga yfir siðferðismörk sem Ólafur Ragnar hefði átt að virða. Því stendur eftir einföld spurning: hvar er sómatilfinning fyrrverandi forseta?“

„Þegar fyrrverandi forseti lætur að því liggja að þjóðin kunni ekki að verða spurð ef aðildarsamningur við Evrópusambandið yrði leiddur til lykta er það ekki saklaus vangavelta. Það er pólitísk dylgja frá manni sem þekkir þunga eigin orða.

Með þessu er ekki aðeins vegið að ríkisstjórninni. Það er vegið að Alþingi og trausti almennings á lýðræðinu. Að sá slíkum efasemdum án haldbærra raka er ekki yfirvegun heldur ábyrgðarlaust tal. En því miður er þetta kunnuglegt stef. Þegar EES-samningurinn var til umræðu var Ólafur Ragnar á móti. Hann greiddi atkvæði gegn samningnum sem síðar varð ein mikilvægasta stoð íslensks atvinnulífs, bættra lífskjara og aukins frelsis. Afstaða Ólafs Ragnars gulnaði fljótt, en ávinningurinn stendur enn traustum fótum.

Nú birtist þetta neikvæða viðbragðið á ný. Í stað raka birtast getsakir um skítlegt eðli ráðamanna sem ekki eru honum sammála, orðalag sem hann sjálfur notaði eitt sinn á Alþingi. Í stað staðreynda er vantrausti hvíslað í eyru landans. Gefið er í skyn að stjórnvöld kunni að svíkja þjóðina, án þess að nokkuð liggi fyrir um slíkt. Það er þægilegt fyrir mann sem vill kveikja eldinn en standa síðan til hliðar og þykjast aðeins hafa bent á reykinn. Því hljómar málflutningur hans nú síður sem málefnalegt framlag en bergmál gamalla ósigra.

Ísland þarf ekki slíkan leiðarvísi. Evrópumálin kalla á upplýsta umræðu, ekki gamalkunna tortryggni frá stjórnmálamanni sem hefur áður staðið röngu megin við stór framfaramál. Fyrrverandi forseti má hafa sínar skoðanir, en þegar þær eru settar fram sem rógur um að Alþingi kunni að svíkja þjóðina er verið að stíga yfir siðferðismörk sem Ólafur Ragnar hefði átt að virða. Því stendur eftir einföld spurning: hvar er sómatilfinning fyrrverandi forseta?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: