- Advertisement -

Þingmaður berst gegn smálánum

„Smálán geta farið með líf fólks. Ég þekki dæmi þess að á nokkrum vikum, mesta lagi mánuðum fer fjárhagur fólks úr því að vera þungur í það að verða óviðráðanlegur. Baggi sem fer með og tekur líf fólks.“

Þetta skrifar Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir einnig og kallar eftir viðbrögðum:

„Ég er að skoða mál einstaklings sem tók rúmar 200.000 kr. í 11 lánum, eða 20.000 í hvert sinn. Í dag, 6 mánuðum síðar stendur skuldin í 615.000 krónum. Þessu til viðbótar er viðkomandi með um 200.000 kr. hjá öðru smálánafyrirtæki. Núna 6 mánuðum síðar skuldar viðkomandi 803.000 krónur. Skuld sem er útilokað að hann geti greitt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Mig langar að vita hvað margir þarna úti eru að glíma við ókleif skuldafjöll vegna margföldunar smáskulda sem bjóðast á Íslandi og ekki virðist möguleiki að stoppa.

Einstaklingum sem enga möguleika á að greiða aftur þessi lán vegna lágra tekna er samt lánað og lánað þangað til allt er komið í skrúfuna og rúmlega það. Lánafyrirtækin hafa beinan aðgang að launareikningum viðkomandi í bönkum og í hvert sinn sem eihver peningur kemur inn standa smálánafyrirtækin vaktina og taka út allt sem inni er fyrir skuldum viðkomandi.

Langar að fá skilaboð á messenger um þá sem vilja deila með mér stöðunni en ég hyggst skoða þessi mál gagnvart lánafyrirtækjunum. Látum reyna á hvort þetta fólk eigi virkilega engan rétt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: