Guðmundur Andri Thorsson skrifaði:
„Þorgerður Katrín var flott í Silfrinu. Hún talar á alþjóðasviðinu sem fulltrúi rótgróins og fullvalda lýðræðis- og réttarríkis. Hún stendur vörð um grunngildi íslensks samfélags og talar fyrir þeim þannig að heimurinn hlustar. Og heiminum veitir svo sannarlega ekki af slíkum skilaboðum.
Seinheppnir eru Sjálfstæðismenn. Akkúrat þegar þeir reyndu að láta kné fylgja kviði og koma henni frá – og refsa henni endanlega fyrir brotthvarf úr flokknum – brillerar hún á alþjóðavettvangi með snyrtilegri og eftirminnilegri ofanígjöf í garð helsta fjöldamorðingja okkar daga.
Nú síðast reyndu þeir að útmála þá niðurstöðu að Trump mistókst sú ætlun að innlima Grænland sem sérstakan ósigur Þorgerðar Katrínar, hvernig sem það má nú vera, en hún stendur nú sterkari en nokkru sinni.“