- Advertisement -

Tímabært að lífeyrissjóðir setji fram eigendastefnu

Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:

„Hér er áhugaverð samantekt RÚV eða réttara sagt hálfgerð hrollvekja um þau tök og völd sem viðskiptamenn og sumir mjög vafasamir hafa á samfélagslega mikilvæg fyrirtæki í gegnum lítinn eignarhlut. Ástæðan er sú að lífeyrissjóðirnir sem eru gjarnan stærstu hluthafarnir eru óvirkir þar sem þeir líta á sig sem fjárfesta frekar en stjórnendur.

Það er hægt að tína fjölmörg fleiri dæmi til m.a. á sviði fasteignafélaga þar sem stjórnarmenn hafa margoft komið við sögu í stórtækum samkeppnisbrotamálum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú er ljóst að fyrirtæki sem eru að stórum hluta í eigu lífeyrisþega hafa gerst stórtæki í verðhækkunum á dagvöru- og húsnæðismarkaði á síðustu árum og jafnvel verið leiðandi í hækkunum. Það er rétt að lífeyrissjóðir íhugi að setja fram eigendastefnu eða ramma fyrir fyrirtækin sín t.d. auka kröfur til stjórnarmanna og starfshátta samstarfsaðila. Einnig er rétt velta því upp hvort að sjóðirnir ættu að setja á eitthvert hámark á arðsemi eiginfjár þar sem fákeppni ríkir m.a. útleigu á íbúðarhúsnæði.

Gegnsæ eigendastefna lífeyrissjóða myndi vera gott leiðarstef fyrir samfélagslega mikilvæg fyrirtæki.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: