- Advertisement -

Vafningalaust viðbragð nauðsynlegt

Jóhann Þorvarðarson skrifaði:

Rauðglóandi
viðvörunarmerki.

Ein af forsendum þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst var að þjóðin gæti tekið upplýsta ákvörðun að lokinni málefnalegri umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sú forsenda stóðst að mínu mati ekki. Umræðan einkenndist að verulegu leyti af rangfærslum, upplýsingaóreiðu, hræðsluáróðri og fullyrðingum sem annaðhvort voru ósannar eða erfitt var að sannreyna og bregðast við í tæka tíð. Þegar kjósendur hafa ekki aðgang að traustum upplýsingum til að meta kosti og galla málsins á upplýstan hátt brestur lýðræðisleg forsenda atkvæðagreiðslunnar. Af þeim sökum tel ég útilokað að halda því fram að niðurstaðan endurspegli raunverulega upplýstan vilja þjóðarinnar.

Nýjar upplýsingar úr stjórnarráðinu, sem hefðu betur komið fram fyrir atkvæðagreiðsluna, gefa einnig tilefni til umhugsunar um stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Þar kemur fram að Donald Trump hafi á sínum tíma rætt við þáverandi forsætisráðherra um hugmyndir þess efnis að Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum. Hvort sem um raunverulegan ásetning var að ræða eða ekki er slík umræða rauðglóandi viðvörunarmerki. Ógnin verður enn eftirtektarverðari í ljósi nýlegs korts sem sýndi Ísland, ásamt Kanada og Grænlandi, sem hluta af Bandaríkjunum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nú þarf skýra
stefnumörkun og
vafningalaust viðbragð.

Slík framganga er ekki til þess fallin að draga úr áhyggjum smáríkis sem byggir öryggi sitt á alþjóðalögum, samstarfi við önnur ríki og virðingu fyrir fullveldi þjóða. Þvert á móti undirstrikar hún mikilvægi þess að Ísland hugi að stöðu sinni og framtíðarhagsmunum af festu og raunsæi.

Ríkisstjórnin má ekki láta sér nægja táknrænar aðgerðir eða hálfkák. Samtal við sendiherra Bandaríkjanna getur verið eðlilegur hluti af diplómatískum samskiptum, en það eitt og sér svarar ekki þeirri grundvallarspurningu hvernig Ísland hyggst tryggja pólitíska og efnahagslega stöðu sína til lengri tíma. Nú þarf skýra stefnumörkun og vafningalaust viðbragð.

Að mínu mati er rökréttasta skrefið að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Slíkar viðræður skuldbinda Ísland ekki til aðildar, en þær veita þjóðinni aukið öryggi um leið og þær senda skýr skilaboð til Bandaríkjanna.

Til lengri tíma myndi innganga í Evrópusambandið veita Íslandi enn meira öryggi enda erum við Evrópuþjóð. Í breyttum heimi, þar sem stórveldi sýna sífellt meiri ófyrirsjáanleika, er ekki skynsamlegt að bíða og vona að stormurinn gangi yfir. Nú er tímabært að bregðast við af festu og framsýni og það strax. Ekki dugar að bíða og sjá til í þessum efnum því málið mun verða enn meira aðkallandi eftir kosningarnar í Bandaríkjunum núna í nóvember.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: