- Advertisement -

VG hvetur Sundsamband Íslands til að endurskoða ákvörðun sína og segja hana í andstöðu við stefnu ÍSÍ

VG sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem bann við þátttöku trans kvenna er harðlega mótmælt:

„Stjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs harmar stuðning Sundsambands Íslands við ákvörðun Alþjóðasundsambandsins um bann við þátttöku trans kvenna á mótum sambandsins.

Ísland hefur verið öflug rödd mannréttinda og jafnréttis á alþjóðavettvangi. Stjórn VG hvetur Sundsamband Íslands til að endurskoða ákvörðun sína enda er hún í andstöðu við stefnu ÍSÍ sem hefur síðastliðin ár unnið náið með Samtökunum 78 og Trans Ísland varðandi fræðslu innan íþróttahreyfingarinnar. Auk þess sem unnið hefur verið markvisst að því að bæta réttindi trans íþróttafólks og þá sérstaklega réttindi trans barna innan íþrótta.

Þær umræður sem sprottið hafa upp á samfélagsmiðlum ýta margar hverjar undir fordóma og hatursorðræðu í garð trans fólks.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Stjórn VG vill ítreka að slíkt má ekki líða í okkar samfélagi og ítrekar mikilvægi þess að taka afstöðu með réttindum jaðarsettra hópa og vinna gegn fordómum og vanþekkingu á málefnum hinsegin fólks.

Að lokum er mikilvægt að nýlega samþykkt aðgerðaáætlun forsætisráðherra í málefnum hinsegin fólks komist að fullu til framkvæmda sem fyrst.

Má þar m.a nefna skýrara lagaákvæði um hatursorðræðu og hatursglæpi þannig að þau veiti fullnægjandi vernd fyrir hinsegin fólk auk aðgerða til að tryggja aðgegni barna að íþrótta- og æskulýðsstarfi. Nauðsynlegt er að slík vinna skili sér alla leið innan íþróttahreyfingarinnar allt frá barna-og ungmennastrarfi til afreksíþrótta.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: