
Stjórnmál:
Óðinn Jónsson skrifaði:
„Skömmin er Bandaríkjamanna að una því hvern einn dag til viðbótar að hafa þennan mann í æðsta embætti þjóðarinnar. Nú hefur Trump svikið stríðshrjáða Úkraínumenn og vegið aftur af leiðtoga þeirra í von um atkvæði handa huglausum repúblikönum í kosningum framundan. Rússaolía á að lækka reikninga fyrirtækja og bænda vestanhafs í korter. Við getum ekki treyst á Bandaríkin sem helstu bandalagsþjóð okkar. Fagurgali Marco Rubio á dögunum skiptir þar engu. Eftir að Rubio kvaddi landið áréttaði hann andstöðu Bandaríkjanna við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og þá fyrirætlun Trump-stjórnarinnar að grafa undan honum. Ómenni heimsins eiga að fá friðhelgi. Það verður ljósara með degi hverjum hversu hrikalegur afleikur það var að hafna aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið.“
Greinin er fengin af Facebooksíðu Óðins.