- Advertisement -

Við getum með sanni sagt: Loforð gefin – loforð efnd

Stjórnmál:

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:

Þegar sagt er að stjórnmál skipti ekki máli og allir flokkar séu eins – þá bendum við á verkin eftir minna en tvö ár með Samfylkingu í ríkisstjórn:

Þú gætir haft áhuga á þessum

…þetta er
bara byrjunin…

Lífeyrir fylgir launum, þjóðarátak í fjölgun hjúkrunarrýma og besta staða Landspítala á þessari öld.

Stóraukið viðhald á vegum, stofnun innviðafélags og fyrstu undirbúningsframkvæmdir við jarðgöng í áratug.

Fyrsta atvinnustefna Íslands, orkuöflun, einföldun regluverks, fækkun stofnana og mesta fjárfesting hjá íslensku atvinnulífi í 50 ár – að frátöldum árunum fyrir hrun.

Lægra raforkuverð í dreifbýli, stækkun verknámsskóla, stjórn á útlendingamálum, fjölgun lögreglumanna, betri námslán og ekkert barn á bið eftir meðferðarheimilum stjórnvalda.

Verðhækkanir á húsnæðismarkaði stöðvaðar, hlutdeildarlán sem virka, tekið á Airbnb, skrúfað fyrir skattahvata til að safna íbúðum og hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá 2008.

Samningurinn um réttindi fatlaðs fólks. Leiðrétting veiðigjalda. Þjóðaratkvæði um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Við getum með sanni sagt: Loforð gefin – loforð efnd.

Og nú göngum við í verkin sem tryggðu friðinn á vinnumarkaði:

Févíti fyrir launaþjófnað, þróun barnabóta í fastar skorður, leigubremsa, minna vægi verðtryggingar og fleiri almennar íbúðir.

Svo mætti áfram telja. Og þetta er bara byrjunin. Breytingar sem bæta daglegt líf venjulegs vinnandi fólks – um land allt – á hverjum einasta degi.

Ég brýndi jafnaðarfólk til baráttu og góðra verka á flokksstjórnarfundi í Sandgerði um helgina. Takk fyrir stuðninginn.


Greinin er fengin af Facebooksíðu Kristrúnar Frostadóttur.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: