- Advertisement -

Vigdís er heiðarlegur stjórnmálamaður

Stjórnmál Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tekur upp hanskann fyrir Vigdísi Hauksdóttur, samþingkonu sína.

Hann skrifar á Facebook: „Vigdís Hauksdóttir er, eins og við öll, langt frá því að vera hafin yfir gagnrýni. Sjálfur er ég oft ósammála henni. Vigdís Hauksdóttir er hins vegar heiðarlegur stjórnmálamaður og hún er trú sinni sannfæringu. Það væri óskandi að hægt væri að segja það sama um marga þá sem hafa hæst í umræðunni. Fólk sem hikar ekki við að ráðast að æru annarra. Fólk sem telur allt leyfilegt þegar Vigdís Hauksdóttir á í hlut. Þetta fólk á að skammast sín. En það eru litlar líkur á að það taki skömmina til sín.“

Karl finnur að þeirri gagnrýni sem Vigdí sætir. „Ýmsir hafa notað síðasta sólarhring í að pönkast sem mest á Vigdísi Hauksdóttur. Húrrahrópin hafa verið háværust þegar spörkin hafa verið sem föstust. Þannig hefur Vigdís verið hædd, hún sökuð um óþolandi framgöngu, auk þess sem talað er um persónulegt skítkast hennar, að það þurfi að sjúkdómsgreina hana o.sv.frv. Fyrrverandi ráðherra vill ráða sálfræðing í áfallahjálp. Fjölmiðlarýnir talar um óttastjórnun.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: