Stjórnmál:
Guðrún Hafsteinsdóttir og Jens Garðar Helgason skrifuðu:
Inngangur Guðrúnar: Vel heppnuð ferð okkar Jens Garðars til Washington er að baki. Við áttum þar góða fundi og samtöl og fundum mikinn áhuga á nánara samstarfi Íslands og Bandaríkjanna.
Ísland á að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Við höfum átt náið varnarsamstarf um áratugaskeið og það er full ástæða til að sýna sambærilegan metnað í viðskiptum. Þar liggja mikil tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélag.
Hér fyrir neðan set ég grein okkar Jens Garðars um ferðina og verkefnin framundan, sem birtist í Morgunblaðinu á laugardaginn.
Íslenskir hagsmunir í Washington

Ísland hefur ástæðu til að bera höfuðið hátt í samskiptum við aðrar þjóðir. Við búum yfir verðmætum auðlindum, öflugu atvinnulífi og þekkingu sem eftir er sóst. Landið okkar gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki í öryggi Norður-Atlantshafsins. Verkefni okkar er að nýta þessa stöðu af skynsemi, rækta vináttu við bandamenn okkar og sækja fram fyrir hönd íslenskra heimila og fyrirtækja.
Það var erindi okkar til Washington dagana 14. til 17. september. Þar áttum við mikilvæga fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu, hittum þingmenn úr röðum bæði Repúblikana og Demókrata og ræddum við fólk með víðtæka reynslu af mótun viðskiptastefnu og gerð alþjóðlegra viðskiptasamninga. Við fundum mikinn áhuga á nánara samstarfi Íslands og Bandaríkjanna og skýran vilja til áframhaldandi samtala.
Sérstaka athygli vakti að allir viðmælendur okkar höfðu fylgst vel með þjóðaratkvæðagreiðslunni um Evrópusambandið. Hún varð tilefni gagnlegra umræðna um stöðu landsins og framtíðarsýn okkar. Skilaboðin voru skýr. Íslendingar vilja ráða eigin málum og taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Með því að hafna því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið kusu þeir að halda áfram á þeirri braut sem hefur reynst þjóðinni vel. Við höfum bæði burði og vilja til að efla tengsl okkar við aðrar þjóðir.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið burðarás í utanríkisstefnu Íslands á lýðveldistímanum. Enginn stjórnmálaflokkur hefur lagt meira af mörkum til að byggja upp og varðveita traust samband Íslands og Bandaríkjanna. Bjarni Benediktsson leiddi, sem utanríkisráðherra, aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu árið 1949 og undirritaði varnarsamninginn við Bandaríkin tveimur árum síðar. Þessar ákvarðanir lögðu grunn að öryggi þjóðarinnar og tengslum sem hafa reynst Íslandi ómetanleg.
Sjálfstæðismenn hafa staðið vörð um þessa stefnu í gegnum áratugina, einnig þegar um hana hefur blásið. Hún hefur byggst á skýrum skilningi á því að fámenn þjóð ver sjálfstæði sitt með traustu samstarfi við vinaþjóðir. Okkur ber að fylgja þeirri sannfæringu eftir, við breyttar aðstæður. Sú ábyrgð er til staðar hvort sem við Sjálfstæðismenn sitjum í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu.
Fundir okkar með fulltrúum beggja stóru bandarísku flokkanna voru mikilvægur þáttur í þessari vegferð. Samband Íslands og Bandaríkjanna þarf að vera traust óháð því hver fer með völd hverju sinni. Við leggjum okkur fram um að rækta þau tengsl og kynna af festu það sem Ísland hefur fram að færa. Þjóðarhagsmunir okkar eiga að ráða ferðinni.
Við viljum að viðskiptasamband ríkjanna verði enn öflugra. Í ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins og umræðum á vettvangi Hudson Institute settum við fram skýrt markmið: Ísland á að stefna að fríverslunarsamningi við Bandaríkin. Við höfum átt náið varnarsamstarf um áratugaskeið og það er full ástæða til að sýna sambærilegan metnað í viðskiptum.
Fyrir íslensk fyrirtæki skiptir aðgangur að bandarískum markaði miklu máli. Betri viðskiptakjör geta stutt við útflutning sjávarafurða, nýsköpun og vöxt þjónustufyrirtækja. Þegar fyrirtæki geta selt vörur sínar og þjónustu á fleiri mörkuðum skapast svigrúm til fjárfestinga og nýrra starfa hér heima. Þannig tengjast utanríkisviðskipti lífskjörum fólks um allt land.

Fríverslunarsamningur þarf að þjóna hagsmunum beggja þjóða. Ísland hefur margt að bjóða, meðal annars þekkingu á nýtingu jarðvarma, öflugan sjávarútveg og hugvit á fjölmörgum sviðum. Bandaríkin búa yfir miklum styrk í tækni, fjárfestingum og nýsköpun. Við eigum að kanna skipulega hvar hagsmunirnir fara saman og hvernig greiða má fyrir auknum viðskiptum. Greina þarf hvaða tollar og aðrar viðskiptahindranir standa helst í vegi fyrir frekari vexti íslensks útflutnings og hvar raunhæft sé að ná árangri.
Samtölin í Washington styrktu sannfæringu okkar um að grundvöllur sé fyrir þeirri vinnu og áhuginn sem við mættum kallar á eftirfylgni. Undirbúningur þarf að vera vandaður og taka mið af heildarhagsmunum Íslands í því augnamiði að opna tækifæri sem nýtast þjóðunum báðum til lengri tíma.
Viðskiptin falla jafnframt inn í víðara samstarf. Öryggi á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum varðar báðar þjóðir. Ísland þarf að axla ábyrgð á eigin vörnum og leggja sitt af mörkum til sameiginlegs öryggis. Þar skiptir máli að styrkja eftirlit og viðbúnað, standa vörð um mikilvæga innviði og tryggja að bandamenn okkar geti treyst á framlag Íslands.
Nánara samstarf við Bandaríkin fer vel saman við öflug tengsl okkar við Evrópu. Við eigum að rækta hvort tveggja af sjálfsöryggi og með íslenska hagsmuni að leiðarljósi. Við munum fylgja þeirri stefnu eftir, halda samtölunum áfram og vinna að því að áhugi verði að raunverulegum tækifærum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur áður haft forystu um ákvarðanir sem styrktu stöðu Íslands til framtíðar. Við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.