- Advertisement -

Villi Birgis foxillur vegna hvalamálsins

Það er hlutverk stéttarfélagsins að verja lífsafkomu og atvinnuöryggi sinna félagsmanna og það er það sem ég er að gera núna.

Vilhjálmur Birgisson.

„Mitt mat er að þessi afturköllun á veiðum og vinnslu hvalaafurða við Íslandsstrendur sé ófyrirgefanleg enda er verið að svipta 120 félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness góðum tekjumöguleikum vegna þeirrar vertíðar sem átti að hefjast á morgun,“ skrifaði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandins og Verkalýðsfélags Akraness.

„Rétt er að geta þess að meðallaun félagsmanna VLFA á síðustu vertíð námu rétt tæpum 2 milljónum á mánuði og á því sést að skaði minna félagsmanna er gríðarlegur.

Ég sem formaður VLFA hef nú þegar haft samband við lögmann félagsins til að skoða réttarstöðu minna félagsmanna gagnvart þeim gríðarlega tekjumissi sem þeir verða fyrir vegna þessarar glórulausu ákvörðunar Matvælaráðherra 5 mínútum áður en vertíðin á að hefjast.

Ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur er lýðskrum.

Það hafa verið dæmi þess í gegnum árin að fólk hefur tekið sér frí úr annarri vinnu til að fara á hvalavertíð gagngert til þess að eiga möguleika á góðum tekjum og því get ég ekki séð annað en að stjórnvöld séu skaðabótaskyld gagnvart þeim tekjumissi sem starfsmenn Hvals verða fyrir. Það eru líka dæmi um það að háskólanemar hafi aflað góðra tekna á þessum vertíðum og komist hjá því að þurfa að taka námslán til að komast í gegnum nám sitt.

Þessi ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur er lýðskrum sem bitnar illilega á okkur Akurnesingum og nærsveitungum. Nægir að nefna í því samhengi umtalsverðar útsvarstekjur svo ekki sé talað um öll afleiddu störfin sem munu tapast vegna þessa og á það jafnt við um verslun, þjónustu, flutninga og svo framvegis.

Það er hinsvegar mitt mat að þetta stjórnarsamstarf geti ekki haldið áfram þegar fólk hagar sér með þessum hætti eins og Matvælaráðherra gerir í þessu tilfelli. Það þarf allavega að kalla eftir því hvort þetta sé virkilega gert með samþykki Framsóknarmanna og Sjálfstæðismanna. Ef svo er ekki þá er ekkert annað að gera í mínum huga nema að slíta þessu samstarfi.

Hvar mun þessi vitleysa enda?

Við skulum hafa það hugfast að nýting á hvalaafurðum er byggð á útgefnum leyfum frá Hafrannsóknarstofnun og það er dapurlegt ef við Íslendingar munum ekki geta fengið að nýta okkar sjárvarauðlindir út frá veiðiráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Ég spyr mig hvar þessi vitleysa mun enda og það er mikilvægt að hún verði stöðvuð í fæðingu.

Það er mikilvægt að rifja upp að við Akurnesingar höfum gengið í gegnum miklar hremmingar í atvinnumálum á liðnum árum er lúta að veiði og vinnslu á sjávarafurðum. Það er ekki langt síðan allar aflaheimildir okkar Akurnesinga voru fluttar héðan í burtu og allt fiskvinnslufólk skilið eftir án lífsafkomu. Og á þeim tíma gerðu stjórnvöld ekkert í því og ég ætla að vona að það sama verði ekki uppi á teningnum nú. Það er hlutverk stéttarfélagsins að verja lífsafkomu og atvinnuöryggi sinna félagsmanna og það er það sem ég er að gera núna.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: