- Advertisement -

Vöruskiptahalli aldrei verið meiri en nú

Vöruútflutningur frá Íslandi hefur aukist frá því í fyrra en samt hefur vöruskiptahalli aldrei verið meiri en nú. Þetta skýrist af stórauknum vöruinnflutningi, einkum á tölvubúnaði í tengslum við uppbyggingu gagnavera. Ferðaþjónustan hefur skilað auknum tekjum í ár en á móti hefur utanlandsferðum Íslendinga fjölgað og uppsafnaður kortaveltujöfnuður við útlönd var enn neikvæður í lok júlí.

Á árunum fyrir heimsfaraldurinn sótti ferðaþjónustan hratt í sig veðrið og þó nokkur afgangur varð af þjónustuviðskiptum. Afgangurinn vó á móti halla á vöruviðskiptum og skilaði í heild töluverðum afgangi af vöru- og þjónustuviðskiptum.

Frá árinu 2020 hefur tvisvar mælst afgangur af vöru- og þjónustuviðskiptum, árin 2022 og 2023. Halli af vöruviðskiptum hefur nú aukist töluvert, sérstaklega frá árinu 2022 og afgangur af þjónustuviðskiptum hefur smám saman náð sér aftur á strik en ekki aukist að neinu ráði. Á sama tíma hefur innflutningur, bæði á vörum og þjónustu, færst í aukana. Því mælist nú almennt meiri halli á vöruviðskiptum en áður og minni afgangur af þjónustuviðskiptum.

Vöruútflutningur eykst – sérstaklega á áli og fiski
Þessi þróun hefur verið greinileg það sem af er þessu ári, sérstaklega í vöruviðskiptum, þar sem aldrei hefur mælst meiri halli en nú. Hallinn skýrist ekki af minni vöruútflutningi – hann hefur aukist í nær öllum vöruflokkum. Útflutningsverðmæti áls og álafurða hafa aukist mest, en þar hefur líklega mest áhrif að í fyrra dró úr framleiðslu vegna raforkuskerðinga. Í ár hefur ekkert þurft að grípa til skerðinga og sé tekið mið af stöðu miðlunarlóna, sem hefur sjaldan verið betri, eru litlar líkur á því út árið. Útflutningsverðmæti sjávarafurða hafa einnig aukist á árinu sem má að miklu leyti rekja til hærra verðs á botnfiski. Þannig hafa færri tonn af þorski verið flutt út á árinu en þrátt fyrir það skilað auknum útflutningsverðmætum. Þá hefur einnig verið kraftur í útflutningi á eldisfiski á árinu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Athygli vekur að töluvert hefur hægt á útflutningi lyfja og lækningavara frá því í apríl á þessu ári, en frá ársbyrjun hafa þó útflutningsverðmæti aukist um rúmlega 13% á föstu gengi. Enn sem komið er hafa innflutningstollar ekki verið lagðir á lyfjainnflutning til Bandaríkjanna og stærstur hluti þeirra lækningavara sem Ísland flytur til Bandaríkjanna er einnig undanskilinn tollum.

Fengið af Hagsjá Landsbankans. Sjá meira hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: