- Advertisement -

Vilhjálmur vill verja krónuna

Núna stendur dollarinn í 128 og evran í 144.

Vilhjálmur Birgisson hefur áhyggjur, rétt eins og flestir Íslendingar, og skrifar:

Ég skal fúslega viðurkenna að ég hef verulegar áhyggjur af því hvernig gengið muni þróast næstu daganna og vikurnar þegar ljóst verður að gríðarlegt högg mun koma á ferðaþjónustuna vegna Kórónuveirunnar.

Hvað mun gerast með gengið, þegar fjárinnstreymi af erlendum gjaldeyrir mun dragast stórkostlega saman vegna fækkunar ferðamanna.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ég myndi vilja fá upplýsingar um hvernig menn hyggjast bregðast við þessu, er ekki t.d. mikilvægt að lífeyrissjóðirnir hætti alfarið í nokkra mánuði að fjárfesta erlendis til að valda ekki enn frekari falli krónunnar.

En það síðasta sem við megum við núna er mikið fall á krónunni sem myndi leiða til aukinnar verðbólgu og hækkunar á verðtryggðum skuldum heimilanna. Við verðum að bregðast við að það gerist ekki, en núna stendur dollarinn í 128 og evran í 144.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: