Í júlí mældist vísitala neysluverðs á evrusvæðinu 2,9 prósentum hærri en á sama tíma í fyrra. Í júní mældist ársverðbólga aðeins lægri eða 2,8 prósent.
Auknin verðbólga skýrist helst af olíuverðshækkunum í kjölfar þess að vopnahlé Bandaríkjanna og Íran hélt ekki lengur en raun bar vitni.
Næsta ákvörðun Evrópska seðlabankans um stýrivexti er væntanleg í september og fyrir þann tíma er von á einni verðbólgumælingu til viðbótar.