- Advertisement -

100 milljarðar eru ekki sérstaklega mikið

Hæstvirtur ráðherra málaflokksins má vera stoltur af því að hafa komið að því að leiða þennan áfanga hingað.

„Hvar erum við stödd, forseti? Sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið höndum saman um sameiginlega sýn í samgöngumálum svæðisins við ríkisvaldið. Þetta er gríðarstór áfangi. Hæstvirtur ráðherra málaflokksins má vera stoltur af því að hafa komið að því að leiða þennan áfanga hingað.“

Þannig mælti Kolbeinn Árnason Proppé í umræðu um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu.

„Er vinnan búin? Nei. Annað væri nú,“ spurði Kolbeinn og svaraði. Svo kom skot á Jón Gunnarsson: „Mér þykir miður að heyra háttvirtan formann umhverfis- og samgöngunefndar láta eins og það að rúmir 100 milljarðar inn á þetta svæði á næstu 15 árum séu eitthvað sérstaklega mikið. Mér finnst ekki verið að tala mjög fallega til íbúa þessa svæðis eða okkar hér sem vinnum og störfum á þessu svæði. Ætlum við að festa okkur í smáatriðinu um hvernig þetta verður eða hitt eða ætlum við kannski bara öll að taka höndum saman, koma okkur áfram á þessa leið? Meinum við eitthvað með því þegar við erum að tala um loftslagsaðgerðir? Það væri ágætt ef háttvirtir þingmenn Samfylkingarinnar svöruðu því. Hvernig ætlum við að fara að takast á við þau mál? Er það ekki með eflingu almenningssamgangna? Hér erum við með höfuðborgarpakka og meira en helmingur af því fjármagni sem fer í hann fer í almenningssamgöngur og aðrar virkar samgöngur. Þetta eru stórtíðindi. Setjumst niður og finnum út úr því hvernig við gerum þetta best. Það skulum við svo sannarlega gera en við skulum fagna því að vera komin hingað.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: