- Advertisement -

Um fjárhagsstöðu Kaldvíkur

Það verður fróðlegt að skoða skjöl um fjárhagsstöðu Kaldvíkur þegar þau berast en væntanlega er norska mamma að skutla inn pening til að mæta skilyrðinu eins og vanalega.

Katrín Oddsdóttir skrifaði:

„Kaldvík fékk rekstrar- og starfsleyfi til sjókvíaeldis í Seyðisfirði í síðustu viku.

Vinur minn sendi mér þessa greiningu sem hann tók saman á fjárhagsstöðu Kaldvíkur um daginn:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Athugið að allar tölur eru í evrum:

Nettótap Kaldvíkur nam 38,3 milljónum evra árið 2025 (30,7 milljónum árið 2024) og félagið brenndi um 49 milljónum evra í handbæru fé, þrátt fyrir að aðeins 2,2 milljónir evra hafi verið á bankareikningum þess í upphafi árs. Félagið hélt aðeins velli vegna þess að norska móðurfélagið lagði því til 61 milljón evra í ný lán og breytti öðrum 68 milljónum evra af skuldum í eigið fé. Nánast allar 206 milljónir evra af skuldum Kaldvíkur eru við móðurfélagið, en ekki hefðbundna banka, og allar eignir félagsins – fiskur, bátar, kvíar og byggingar – eru veðsettar vegna fjármögnunar sem aflað hefur verið í Noregi.

Í áritun KPMG segir berum orðum að veruleg óvissa sé til staðar sem kunni að vekja verulegan vafa um getu Kaldvíkur til að halda áfram rekstri, sem er um það bil eins nálægt því og endurskoðandi kemst að því að segja að félag geti ekki fjármagnað rekstur sinn. Félagið greiðir vissulega auðlindagjaldið (5,3 milljónir evra), en engan tekjuskatt lögaðila, enda hefur það safnað upp 123 milljónum evra í skattalegu tapi sem hægt er að nýta á móti framtíðarhagnaði um ókomin ár.

Niðurstaðan er þessi: félagið hefur þegar orðið uppiskroppa með fé, ítrekað, og lifir aðeins af með stöðugum fjárframlögum frá Noregi. Síðast kom annað björgunarlán snemma árs 2026 eftir að félagið braut gegn lánaskilmálum, en enn hefur ekki verið skrifað undir næstu fjármögnun. Þetta kemur í raun allt fram í ársreikningi félagsins sjálfs.

***

Samkvæmt 8. gr. laga um fiskeldi skal með umsókn um rekstrarleyfi sjókvíaeldisstöðvar fylgja áætlun um fjárfestingar í búnaði; „ásamt staðfestingu á stöðu eigin fjár og eiginfjárhlutfalli umsækjanda þegar umsókn er lögð fram. Eiginfjárhlutfall skal vera að lágmarki 30% að teknu tilliti til fjárfestinga í búnaði samkvæmt áætlun.“

Matvælastofnun hyggst ekki afhenda okkur sem ætlum að kæra ákvörðun um rekstrarleyfi gögn málsins fyrr en eftir helgi en þá verður um þriðjungur liðinn af þeim eina mánuði sem við höfum til að kæra. Það verður fróðlegt að skoða skjöl um fjárhagsstöðu Kaldvíkur þegar þau berast en væntanlega er norska mamma að skutla inn pening til að mæta skilyrðinu eins og vanalega.

Þess má geta að MAST hafnaði því að framlengja frestinn til kæru svo hann næmi mánuði frá afhendingu gagna og vísaði til þess að einn mánuður frá birtingu leyfis væri lögbundinn frestur. Sjálft hafði MAST skv. lögum átta vikur til að gefa út leyfi eftir að hafa auglýst tillögu að því. Það tók stofnunina hins vegar 18 mánuði. Við kærðum þennan drátt og kröfðumst þess að leyfi yrði synjað og eftir atvikum þá auglýst upp á nýtt en á það var ekki fallist.“

– Þetta er frábær atvinnugrein. En allt er til umræðu – og við fögnum því, segir varaformaðurinn Jens Garðar Helgason. Hér í bátsferð, með Guðmundi Gíslasyni forstjóra í bakgrunni. Karsten Måsøval sést enn lengra aftar á myndinni. Mynd: Tina Totland Jenssen


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: