- Advertisement -

PCC óskar samþykkis byggingaráforma

Atvinnulíf Forráðamenn PCC hafa sent byggingafulltrúa Norðurþings umsókn þar sem óskað er samþykkis fyrirhugaðra byggingaáforma á iðnaðarlóðinni á Bakka við Húsavík.

Með umsókninni skilaði fyrirtækið inn aðalteikningum flestra fyrirhugaðra húsa sem áætlað er að verði rúmir þrír hektarar að grunnfleti og nærri fjörutíu metra há.  Einnig er beðið eftir umsögnum annarra umsagnaraðila um byggingaráformin.

Umsóknin og gögnin verða skoðuð og niðurstöður kynntar í skipulags- og byggingarnefnd í næsta mánuði.

Gangi allt eftir er gert ráð fyrir að veitt verði leyfi til framkvæmda við jarðvinnu á iðnaðarlóð PCC nú í sumar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: