„Það á ekki að koma til greina að veikja pólitískt vægi landsbyggðarinnar með því að fækka þingmönnum þessara kjördæma.“
Vilhjálmur Birgisson skrifaði:
„Ég verð að segja að mér hugnast alls ekki hugmyndir um að fækka þingmönnum í Norðvestur- og Norðausturkjördæmi. Það á að mínu mati ekki að koma til greina.
Það virðist nefnilega gleymast í þessari umræðu hvar stór hluti þeirra verðmæta sem íslenskt samfélag og velferðarkerfið byggja á verður til. Þau verða ekki til við Austurvöll – þau verða að stórum hluta til úti á landsbyggðinni.

Í þessum tveimur kjördæmum einum eru margar af öflugustu útflutningsstoðum þjóðarinnar: Norðurál og Elkem á Grundartanga, Fjarðaál á Reyðarfirði, gríðarlega öflugur sjávarútvegur á Snæfellsnesi, Norðurlandi og Austurlandi, fiskeldi á Vestfjörðum og Austfjörðum og hátæknifyrirtæki á borð við Kerecis.
Norðurál eitt og sér stóð undir rúmlega 11% af útflutningsverðmætum Íslands árið 2025 og fiskeldi skilaði 53,4 milljörðum króna í útflutningsverðmæti. Þar við bætast hundruð milljarða frá sjávarútvegi, álframleiðslu og annarri útflutningsstarfsemi.
Gróft mat bendir til þess að Norðvestur- og Norðausturkjördæmi geti staðið undir í kringum 60% af öllum vöruútflutningi Íslands. Þetta er mat en ekki opinber landshlutatala Hagstofunnar, en stærðargráðan segir sína sögu.
Og þá spyr ég: Á virkilega að svara þessari gríðarlegu verðmætasköpun með því að fækka þingmönnum og veikja rödd þessara byggða á Alþingi?
Ísland er meira en
höfuðborgarsvæðið.
Ísland er meira en höfuðborgarsvæðið. Þetta eru gríðarlega víðfeðm kjördæmi, fjölmörg sveitarfélög og byggðarlög þar sem fólk vinnur á hverjum degi við að skapa gjaldeyristekjur og verðmæti sem allt þjóðfélagið nýtur góðs af.
Verðmætin verða að stórum hluta til á landsbyggðinni. Þar er fiskurinn veiddur og unninn, þar er fiskurinn alinn, þar er álið og kísillinn framleiddur og þar eru fjölmargar af okkar mikilvægustu útflutningsstoðum.
Þess vegna segi ég það alveg skýrt: Það á ekki að koma til greina að veikja pólitískt vægi landsbyggðarinnar með því að fækka þingmönnum þessara kjördæma.“