- Advertisement -

Háskóli og útgerð taka höndum saman

 Atvinnulíf Háskólinn í Reykjavík og Landssamband íslenskra útvegsmanna hafa gert með sér samstarfssamning um að efla menntun og nýsköpun í sjávarútvegi. Samkvæmt  samningnum munu HR og LÍÚ meðal annars koma á samstarfi nemenda  við fyrirtæki í atvinnugreininni, með það fyrir augum að auka rannsóknir og nýsköpun í sjávarútvegi.

„Sjávarútvegurinn er grunnatvinnuvegur á Íslandi og stendur undir fjölbreyttri atvinnustarfsemi. Hlutfall sjávarútvegs af öllum útflutningi vöru og þjónustu árið 2012 var rúmlega 28%. Þá benda greiningar Íslenska sjávarklasans til þess að áætla megi að sjávarútvegur standi með beinum og óbeinum hætti undir 15-20% starfa í landinu, en það samsvarar til 25-35 þúsund starfa. Það er því til mikils að vinna fyrir samfélagið í heild að efla enn frekar rannsóknir og nýsköpun í atvinnugreininni, meðal annars til að auka sjálfbærni, nýta afurðir eins vel og mögulegt er og skapa fleiri störf. Þetta verður gert meðal annars með því að gera nemendum HR kleift að vinna nýsköpunarverkefni í starfsnámi hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og meistaranemum að tengja verkefni sín fyrirtækjum í greininni,“ segir á heimasíðu LÍÚ.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: