- Advertisement -

Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs

Alþingi:

Guðrún Hafsteinsdóttir lagði spurningar fyrir Kristrúnu Frostadóttur á Alþingi fyrr í dag. Skoðum aðeins:

Guðrún Hafsteinsdóttir sagði:

„Suðurland er ekki hraðbanki ríkissjóðs. Þetta eru skilaboð ársþings Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá síðustu viku til ríkisstjórnarinnar. Sveitarfélögin hafa varað við því að sívaxandi álögur grafi undan atvinnulífi á Suðurlandi og þau krefjast þess að áformunum verði frestað þar til samanlögð áhrif þeirra hafi verið metin. Ég tek undir þá sjálfsögðu kröfu.

Sérstök gjaldtaka
á Þingvöllum,
Gullfossi og Geysi…

Hæstvirtur forsætisráðherra ber ábyrgð á heildarstefnu ríkisstjórnarinnar og verður að tryggja að ákvarðanir einstakra ráðherra séu metnar í samhengi. Sérstök gjaldtaka á Þingvöllum, Gullfossi og Geysi bætist samkvæmt áformunum við hækkun virðisaukaskatts á baðlón, kílómetragjald og aðrar álögur. Fyrirtæki sem hyggst fjárfesta eða ráða fleira fólk þarf að taka þetta allt saman í reikninginn og ríkisstjórnin verður að gera það líka. Ég minni á að ríkissjóður fær engar tekjur af fjárfestingum sem aldrei verður ráðist í eða störfum sem aldrei verða til. Ég vil að við gerum fólki auðveldara að fjárfesta og byggja upp atvinnu í heimabyggð. Tekjur af ferðaþjónustu þurfa að nýtast betur til uppbyggingar innviða þar sem álagið verður til og sveitarfélögin eiga að koma að þeirri vinnu og geta haft áhrif á niðurstöðuna.

Ég spyr því hæstvirtan forsætisráðherra: Hefur ríkisstjórnin látið meta samanlögð áhrif þessara skattahækkana og gjaldtöku á störf og fjárfestingar á Suðurlandi og mun ráðherra leggja það mat fram? Ef matið liggur ekki fyrir, mun þá hæstvirtur forsætisráðherra verða við kröfu sveitarfélaganna og beita sér fyrir því að afgreiðslu áformanna verði frestað þar til óháð heildarmat liggur fyrir og samráð hefur farið fram?“

Kristrún Frostadóttir svaraði:

…það er eitt
sveitarfélag
sem er þeirrar
gæfu aðnjótandi…

„Mér finnst ágætt að taka fram í samhengi sérstaklega við þau mál sem snúa að ferðaþjónustunni hér inni að þau eru enn þá í samráði; reyndar er fresti til samráðs bara nýlokið og það er verið að hlusta á ýmis sjónarmið. Það er verið að hlusta á hversu langt gjaldið nær. Ég heyri, og það hefur verið kallað eftir því frá sumum stöðum, að þetta eigi mögulega að ná til fleiri staða og það getur vel verið að í framtíðinni þróist þetta með þeim hætti. Það hefur lengi vel verið kallað eftir því.

Það liggur raunar fyrir í gögnum þar sem ferðamenn sjálfir eru spurðir hvort þeir hafi áhuga á að greiða fyrir aðgang að náttúruperlum Íslands og þeir hafa sagt já. Íslendingar hafa verið spurðir og þeir hafa líka sagt já. Þessi ríkisstjórn setti þetta í stjórnarsáttmála fyrir tveimur árum síðan, Samfylkingin gerði það reyndar í kosningastefnu sinni, þannig að það er ekkert óvænt hvað þetta varðar. En samráð er alltaf til góðs, greiningar enn betri, enda hygg ég að ýmsu verði bætt við málið núna þegar það loksins kemur fram, það er ekki enn þá komið inn í ríkisstjórn. Í kjölfarið þá finnst mér bara gott og sjálfsagt að það verði kallað eftir greiningum og gögnum þar að baki.

En það hefur komið fram í fjölmiðlum, m.a. af hálfu Samtaka ferðaþjónustunnar, að það hefur fjöldinn allur af fundum átt sér stað og það sem m.a. hefur komið fram á þeim fundum er að það væri eðlilegt að taka svona ákvarðanir í skrefum sem er það sem þessi ríkisstjórn er að gera. Hugmyndin er einmitt að byrja á afmörkuðu svæði þar sem helstu náttúruperlur í eigu þjóðarinnar eru, ég ítreka í eigu þjóðarinnar. Það vill þannig til, já, að það er eitt sveitarfélag sem er þeirrar gæfu aðnjótandi að vera með aðgang að þeim náttúruperlum fyrir atvinnuuppbyggingu en það á ekki alveg við hringinn í kringum landið. En það má vel skoða þessa þætti og ég hygg að þingið muni líka fara vel með málið þegar það er loks komið fram.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: