- Advertisement -

Segir óeðlileg pólitísk afskipti hafa verið af rekstri og stjórn Landsvirkjunar

Landsvirkjun:

Jens Garðar Helgason tók til máls um málefni Landsvirkjunar. Hér að neðan er góður partur ræðunnar:

„Hér er um óeðlileg pólitísk samskipti milli ráðuneytis og ráðherra að ræða. Í minnisblaði til stjórnar 15. júní varaði forstjóri við neikvæðri þróun í stjórnarháttum. Hann taldi stjórn fyrirtækisins og fjármála- og efnahagsráðuneytið hafa vikið frá þeim ramma sem ætti að gilda um verkaskiptingu eiganda, stjórnar og forstjóra. Þar var m.a. lýst yfir áhyggjum af því að aukin samskipti ráðuneytis og stjórnar gætu verið túlkuð sem pólitísk afskipti af rekstri Landsvirkjunar og haft afleiðingar gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA, ESA. Minnisblaðið sýnir líka að forstjóri taldi þau vinnubrögð fela í sér lagalega áhættu og hættu á að samskipti stjórnar og ráðuneytis yrðu túlkuð sem pólitísk afskipti. Þá gagnrýndi hann að ráðuneytið hefði, að hans sögn, átt frumkvæði að fundum með stjórn án þess að forstjóri fengi fundarboð og þar virtust jafnvel vera rædd málefni sem heyrðu undir daglegan rekstur og forstjóri var ekki viðstaddur þá fundi.

Og hvað gerist svo í framhaldinu? Hinn 11. september fær hæstv. ráðherra trúnaðarpóst frá sérfræðingi ráðuneytisins undir fyrirsögninni Landsvirkjun (viðkvæmt).Þar segir m.a.: „[L]ítið traust virðist vera til staðar á báða bóga sem gerir stjórn erfitt fyrir að sinna starfi sínu.“ Þá komum við að aðalatriði málsins, virðulegur forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnum 19. október sagði hæstv. ráðherra, með leyfi forseta: „Ég held að sú túlkun hv. þingmanns að forstjóri Landsvirkjunar hafi hrökklast úr starfi sé auðvitað úr lausu lofti gripin.“ Hæstv. ráðherra segir líka, með leyfi forseta:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það hefur líka komið fram í máli stjórnarformanns Landsvirkjunar að ástæðurnar hafi, eins og þær eru skýrðar af forstjóra Landsvirkjunar, verið almenns eðlis um áherslur í stjórnun og ekki snúið að stefnu fyrirtækisins, ekki snúið að framtíðarsýn þess heldur almennum áherslum.“ — Almennum áherslum. — „Við það er engu að bæta,“ segir hæstvirtur ráðherra.

Og hæstvirtur ráðherra heldur áfram, með leyfi forseta:

„Ef svo er ekki, ef um almennar stjórnunaráherslur er að ræða, er engu við það að bæta. Hér er sagan öll. Mér þykir ákaflega leiðinlegt að hv. þingmanni gremjist það en svona er stundum raunveruleikinn. Hann er einfaldlega ekki flóknari en þetta,“ segir hæstvirtur ráðherra.

Það sem kemur fram í minnisblaði forstjóra Landsvirkjunar snýst ekki um einhvers konar áherslur í stjórnun, eins og hæstv. ráðherra segir. Og hæstvirtur ráðherra vissi betur 19. október.

Virðulegur forseti. Hæstvirtur ráðherra vissi um ágreining stjórnar og forstjóra. Hann og ráðuneyti hans funduðu með stjórn níu sinnum og höfðu óeðlileg pólitísk afskipti af rekstri og stjórn félagsins. Hann sagði ósatt um vitneskju sína hér í ræðustól Alþingis um málið.

Virðulegur forseti. Þetta eru staðreyndir málsins og þetta er raunveruleikinn. Hann er einfaldlega ekki flóknari en þetta.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: