- Advertisement -

SIJ: „Vegakerfið er víða laskað“

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar á Facebook:

„Vegakerfið er víða laskað og illa undirbúið fyrir þann mikla umferðarþunga sem hefur orðið á allra síðustu árum. Framlög til vegagerðar hafa verið of lág og ekki haldist í hendur við aukið álag. Fjármagn vegna ökutækja og eldsneytis skila ríkissjóði um 47 milljarða og er hlutfall þess sem rennur til vegagerðar um 70%, eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Restin fer í okkar sameiginlegu sjóði sem deilist út í heilbrigðiskerfið, tollgæslu, löggæslu ofl m.a. til að standa undir kostnaði við eftirlit og afleiðingar af notkun ökutækja.
Gjöldin eru: Almennt vörugjald af bensíni, sérstakt vörugjald af bensíni, olíugjald, kolefnisgjald, bifreiðagjald, kílómetragjald og þungaskattur. Ekki hefur verið litið á vsk. af innflutningi af bifreiðum, varahlutum osfrv sem fjármagn til vegagerðar heldur frekar til að fjármagna heibrigðis- mennta- og velferðarkerfið ofl.
Svokallaðar „markaðar tekjur“ (sem nú er aflagt hugtak í fjárlögum) eru ca 19 ma á árinu 2018 og hafa þær tekjur alltaf farið allar beint til vegagerðar. Fjármagn til vegamála þarf að taka mið af stöðu svæða, ferðaþjónustu og öryggissjónarmiðum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: