- Advertisement -

Vill rannsaka núverandi hrun

Nú er því rétti tíminn að ákveða að öllum steinum verður velt í framtíðinni.

Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar:

Ég legg til að við ákveðum hér og nú, að sett verði á fót rannsóknarnefnd sem mun gera upp þær efnahagslegu aðgerðir sem nú er ráðist í vegna hrunsins. Þannig tilkynning, á þessum tímapunkti, að þetta hrun og ekki síst viðbrögðin við því, verði rannsökuð mun virka sem öflugt aðhald á þær efnahagslegu ákvarðanir sem nú eru teknar.

Nú eru kynntir aðgerðarpakkar stjórnvalda og bankar ráðast í alls konar aðgerðir gagnvart fyrirtækjum og fólkinu í landinu. Stórkostleg tilfærsla á fjármunum mun eiga sér stað og ákvarðanir um hvaða fyrirtæki lifa og hvaða fyrirtæki munu deyja verða teknar. Þá munu fjármunir og störf glatast og margs konar lobbýismi fyrir sérhagsmunum mun eiga sér stað.

Í bankahruninu fór margt úrskeiðis, tæplega 30 íslenskir bankamenn voru dæmdir í óskilorðsbundið fangelsi og urðu sumar aðgerðir stjórnvalda og banka mjög umdeildar. Þá var hins vegar ákveðið að setja á fót öfluga rannsóknarnefnd sem hafði nánast ótakmarkaðar heimildir til að gera upp málin og bankaleynd var afnumin. Þótt þessi tvö hrun séu eðlisólík og ekkert bendir til lögbrota í þessu hruni sem nú gengur yfir, er ljóst að margar ákvarðanir verða umdeildar. Sumir munu fá fyrirgreiðslu á kostnað almennings en aðrir ekki. Án gagnsæis verður ekki traust á aðgerðunum og þeirri uppbyggingu sem við munum öll standa frammi fyrir.

Þó að orsakir þessa hruns séu mun ljósari en orsakir síðasta hruns stendur eftir að aðgerðirnar sem stjórnvöld og fyrirtæki ráðast í vegna þessa hruns þurfa að koma til skoðunar. Það skiptir einnig máli að 2 af 3 stærstu viðskiptabönkunum eru ríkisbankar og þurfa því allar aðgerðir bankanna sérstaklega að vera hafnar yfir allan vafa.

Nú er því rétti tíminn að ákveða að öllum steinum verður velt í framtíðinni. Þannig tryggjum við best gagnsæi en ekki síst jafnræði í þeim aðgerðum sem nú eru ákveðnar.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: