- Advertisement -

Stundin lýsi opinberlega yfir andstyggð sinni á Sósíalistaflokki Íslands

Gunnar Smári skrifar:

Annars er þessi fréttaskýring það fyndnasta á Internetinu í dag, höfundur er svo ákafur í andúð sinni á sósíalisma að hann verður fullkomlega hlægilegur.

Mér finnst að Stundin eigi að lýsa opinberlega yfir andstyggð sinni á Sósíalistaflokki Íslands, í stað þess að klæða þessa andúð sína í heimskulegar fréttaskýringar. Hvað er eiginlega með þetta blað? Er það að launa einhverjum styrkina sem það fékk, vill það standa með elíuflokkunum og skammast í þeim flokkum sem ekki hafa lýst yfir ánægju með fjárstuðning til eigenda Stundarinnar?

Í nýsamþykktri utanríkisstefnu Sósíalistaflokksins segir: „Í dag stendur heimsbyggðin frammi fyrir mestu fólksflutningum sögunnar og flóttamenn hafa ekki verið fleiri síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta er afleiðing styrjaldja og valdabaráttu, efnahagslegs vanda veikstæðra þjóða í alþjóðavæddum kapítalisma og loftslagsbreytingar. Gera þarf ráð fyrir því að flóttafólki muni fjölga verulega á næstu árum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Allar þjóðir heimsins þurfa að axla ábyrgð á þessum vanda og til að mæta honum þurfum við að endurskoða útlendingalögin sem við störfum eftir í dag. Innflytjendum mun fjölga á næstu ár og áratugi og styrkja íslenskt samfélag, rétta við óhagstæða aldursamsetningu og tryggja okkur aukið afl til að standa undir velferð og réttlæti innan samfélagsins. Hagmunir okkar fara því saman með fólkinu sem hrakið hefur verið á flótta og leitar sé að nýju heimili þar sem það getur tryggt sér og sínum öryggi, frið og þokkalega afkomu. Taka verður á móti flóttafólki með mannúð og mannréttindi að leiðarljósi og hafa það í huga að við erum öll íbúar á sömu jörð.“

Lesið um Sósíalistaflokkinn hjá Sósíalistaflokknum, ekki í illa dulbúnum áróðursgreinum Stundarinnar, sem virðist vera að gabba fólk til að kjósa and-sósíalustana í Pírataflokknum.

Annars er þessi fréttaskýring það fyndnasta á Internetinu í dag, höfundur er svo ákafur í andúð sinni á sósíalisma að hann verður fullkomlega hlægilegur.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: