- Advertisement -

Davíð Þór um ríkisstjórn Katrínar Jakobs: „Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína“

Davíð Þór Jónsson, prestur í Laugarneskirkju, er harðorður í garð Kat´rinar Jakobsdóttur forsætisráðherra og félaga hennar í ríkisstjórninni. Þar hjólar presturinn í fyrrum ástkonu sína en hann getur ekki orða bundist vegna fyrirhugaðrar brottvikningar um 300 flóttamanna frá Íslandi.

Davíð Þór kallar ríkisstjórn Katrínar einfaldlega „fasistastjórn“ þar sem forsætisráðherrann og félagar hennar í VG hafi selt sál sína:

„Í fréttum er það helst að fasistastjórn VG hefur ákveðið að míga á Barnasáttmála SÞ, sem hún þó lýgur því að hún hafi “lögfest” á Íslandi, en þar kemur skýrt fram að hann gildi um öll börn (þ.e. einstaklinga yngri en 18 ára) í lögsögu hvers ríkis – óháð því með hvaða hætti þau komu þangað. Þar er kveðið á um að allar ákvarðanir sem varði heill og hamingju barna beri að taka með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Samt á að senda fjölda barna úr langþráðu öryggi og skjóli hér á Íslandi, þvert á það sem þeim er fyrir bestu, til að hafast við í fullkomnu reiðuleysi á götum úti á Grikklandi, jafnvel þótt Flóttamannahjálp SÞ hafi af mannúðarástæðum lagst eindregið gegn því að fólk sé flutt þangað,“ segir presturinn ákveðinn og bætir við:

„Til að bíta höfuðið af skömminni er málsvörnin fólgin í innihaldslausu froðusnakki um “heildstæða stefnumótun í málflokknum” og því að væna formann Rauða krossins um lygar þegar hún lýsir ástandinu þar. Þetta er í beinni mótstöðu við það hvernig VG liðar töluðu um þessi mál þegar þeir voru í stjórnarandstöðu. Þinglið og ráðherrar VG eru ekki lengur bara meðsek um glæpi þessarar ríkisstjórnar gegn mannúð og góðu siðferði, þau eru einfaldlega sek eins og syndin. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir fólk sem selur sál sína fyrir völd og vegtyllur.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: