- Advertisement -

Kristrún: „Verðbólgan mun fara niður“

Alþingi: Hér á eftir fara samskipti formanna Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar, Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristrún Frostadóttir. Guðrún byrjar:

„Verðbólga mælist nú 5,2% og þetta er þriðja óheppilega mælingin í röð, svo ég noti nú orðfæri ríkisstjórnarinnar. Í síðasta mánuði var vísað í tímabundin áhrif og einskiptisaðgerðir en nú getur forsætisráðherra ekki bent á einskiptisaðgerðir eða einhverja aðila úti í bæ. Nú þarf ríkisstjórnin að horfast í augu við vandann. Á sama tíma er atvinnuleysi á uppleið og mælist nú 7,3%. Atvinnuleysið var 3,8% þegar þessi ríkisstjórn tók við. Þá var líka verðbólga á niðurleið. Vextir höfðu tekið að lækka og útlit var fyrir hallalausan ríkissjóð árið 2025. Ekkert, nákvæmlega ekkert af þessu á enn við.

Til að bregðast við ástandinu, sem þó er sjálfskapað hjá ríkisstjórninni, gerir hún það sem hún gerir best, hún boðar aðgerðapakka á næstu dögum. Höfum við ekki öll heyrt þetta áður? Aðgerðapakka á næstu dögum.

Hvernig væri að draga til baka allar þær misráðnu ákvarðanir sem þessi ríkisstjórn hefur tekið, t.d. skattahækkanir á heimilin og fyrirtækin í landinu, aukin ríkisútgjöld, augljós hagstjórnarmistök sem allir sjá nema ríkisstjórnin sjálf og svo Gylfi Magnússon, fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar?

…sem allir sjá nema ríkisstjórnin sjálf og svo Gylfi Magnússon, fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar?

Þetta eru bara þrjár tillögur frá mér. Þið megið bara taka þær allar strax. En ég veit að ríkisstjórnin hefur engan áhuga á hagræðingartillögum. Því spyr ég hæstvirtan forsætisráðherra: Ætlar ríkisstjórnin í alvöru að halda áfram að kenna öðrum um eða ætlar hún loksins að læra af eigin mistökum, sýna aðhald í ríkisrekstri og leggja sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu í þessu landi?“

Kristrún forsætisráðherra sagði fyrst: „Mig langar, ef mér leyfist hérna í upphafi, að þakka forseta fyrir falleg minningarorð í upphafi þingfundar og ég vildi bara nýta tækifærið hérna til að votta aðstandendum Davíðs Oddssonar og samstarfsfólki, sem ég veit að margt hvert er hér inni, innilega samúð mína.“

Kristrún hélt áfram og sagði þá:

„Hvað varðar fyrirspurn háttvirts Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, þá er ég auðvitað ekki sátt við þessar mælingar sem eru núna að detta í hús. Ég fundaði í morgun ásamt formönnum flokkanna í þessari ríkisstjórn með aðilum vinnumarkaðarins.

Við vorum með fund þjóðhagsráðs og vissulega eru áhyggjur af þeirri stöðu sem er uppi núna. Ég held að allir taki þetta alvarlega. Mér dettur ekki í hug að kenna öðrum um en mér dettur heldur ekki í hug að láta eins og ríkið sé eini aðilinn sem geti náð verðbólgunni niður. Það mun þurfa samstillt átak. Það mun þurfa aðhald á sviði ríkisfjármála sem er sannarlega það sem við erum að vinna að.

Verðbólgan mun fara niður.

Undirliggjandi hagþróun gerir það auðvitað erfiðara en það þýðir bara að við þurfum að passa enn þá betur upp á stöðu ríkisfjármálanna og það er það sem við munum kynna til sögunnar núna í fjármálaáætlun, óháð þessari undirliggjandi þróun. Ég er hins vegar líka meðvituð um að það er ekki ríkið sem semur um kaup og kjör á markaði þegar kemur t.d. að kjarasamningum. Það er heldur ekki ríkið sem tekur ákvarðanir um verðlag þegar kemur að fyrirtækjunum eða setur fram launakröfur. Þetta eru allt þættir sem þurfa að vinnast saman.

En ég veit að allir finna til ábyrgðar og þrátt fyrir að þetta séu flóknar aðstæður sem við finnum okkur í er ég vongóð. Verðbólgan mun fara niður. Það mun þurfa samstillt átak til þess og ríkisstjórnin mun sannarlega veita það akkeri sem þarf með því að vera með styrka stjórn á ríkisfjármálum,“ sagði Kristrún.

Guðrún tók aftur til máls og sagði þá:

„Ég þakka hæstvitrum forsætisráðherra fyrir svarið. Á sama tíma og ríkisstjórnin boðar aðgerðir einhvern tímann í einhverri framtíð vegna verðbólgu og versnandi stöðu heimila og fyrirtækja virðist samt athygli ríkisstjórnarinnar vera annars staðar. Utanríkisráðherra segir að verið sé að leggja lokahönd á þingsályktunartillögu um aðild að Evrópusambandinu og forsætisráðherra hefur talað um þjóðaratkvæðagreiðslu á næstu mánuðum. Forsætisráðherra talar ekki um það hér í þinginu heldur á blaðamannafundum í útlöndum. Það er óboðlegt að þjóðin frétti af áformum ríkisstjórnarinnar á blaðamannafundum erlendis. Þetta er hagsmunamál af þeirri stærðargráðu að við verðum að ræða það hér heima á Alþingi og við fólkið í landinu af yfirvegun og sanngirni. Það er alger lágmarkskrafa. Stöðugleiki og lífskjör fást ekki keypt í lágvöruverðsverslunum í Brussel. Við þurfum að taka til heima og taka hagstjórnina föstum tökum. Því spyr ég hæstvirtan ráðherra: Hvernig réttlætir hún þessa forgangsröðun ríkisstjórnarinnar að ýta ESB-málinu áfram á sama tíma og verðbólga situr föst, atvinnuleysi eykst og ríkisstjórnin hefur ekki enn lagt fram trúverðugt plan til að ná niður verðbólgu og verja lífskjör í þessu landi?“

Fókusinn er ekkert farinn.

Þá var komið að Kristrún öðru sinni:

„Við vinnum enn þá að því að gera það sem við sögðumst ætla að gera í ríkisfjármálum. Fókusinn er ekkert farinn af því og það mun bara koma í ljós í næstu fjármálaáætlun, alveg eins og þetta er tekið mjög alvarlega á fundi þjóðhagsráðs. Það að spyrja þjóðina hvort hún vilji hafa þann valkost að sjá hvað gæti komið út úr aðildarviðræðum við Evrópusambandið — að láta eins og sú spurning setji allt á hliðina hérna finnst mér sérstakt. Þetta snýst um valkosti. Það er enginn að tala um að þetta sé nein töfralausn. Þetta er eitthvað sem hefur staðið til í langan tíma að gera. En ég verð að segja varðandi það að halda því fram að hér hafi fólk verið að tala við erlenda fjölmiðla en ekki þá innlendu að ég hef mætt í mörg viðtöl upp á síðkastið. Utanríkisráðherra hefur mætt í mörg viðtöl upp á síðkastið þar sem lá fyrir að það stæði til að leggja fram þingsályktunartillögu um þetta mál núna á allra næstu vikum. Það felur eðli málsins samkvæmt í sér að atkvæðagreiðslan er á næstu mánuðum því þannig virkar slík þingsályktunartillaga. Þetta eru ekki nýjar fréttir. Stjórnarandstaðan ætti að hætta að tala um þetta sem nýjar fréttir. Þetta er raunveruleikinn. Þetta er veruleikinn. Þetta var loforð þessarar ríkisstjórnar. Við erum að standa við það og það er þjóðarinnar að svara þessari spurningu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: