- Advertisement -

Annað eins rugl hef ég ekki heyrt lengi

Vilhjálmur Birgisson: Annað eins rugl hef ég nú ekki heyrt lengi og nú á að reyna að kenna lífskjarasamningum um að hafa leitt til fleiri uppsagna en fall WOW air.

Ég hef sagt það og segi það enn og aftur að mitt mat er að lífskjarasamningurinn er skynsamlegasti og besti kjarasamningur sem gerður hefur verið á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Samningur sem laut að því að nota það svigrúm sem var til skiptanna til handa þeim sem voru á lökustu kjörunum ásamt ríflegum aðgerðapakka af hálfu stjórnvalda.

Hugsið ykkur að það var samið um að hverfa frá prósentuhækkunum og semja þess í stað um flata krónutöluhækkun sem nam 17.000 króna hækkun á mánuði. Ef sú hækkun hefur valdið einhverjum fyrirtækjum vanda þá voru það fyrirtæki sem vart hafa átt tilverurétt á íslenskum vinnumarkaði.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Lífskjarasamningurinn hefur skilað samfélaginu nú þegar gríðarlegum ávinningi þar sem tókst að brjótast út úr launabreytingarkerfi prósentuhækkana sem gera ekkert annað en að ala á misskiptingu, óréttlæti og auka ójöfnuð. Þessu til viðbótar hefur lífskjarasamningurinn leitt til þess að stýrivextir hafa lækkað um 1% frá undirritun samningsins sem klárlega skilar ekki bara heimilum þessa lands ávinningi heldur einnig skuldsettum fyrirtækjum í ferðaþjónustunni sem og öðrum fyrirtækjum.

Einnig hefur lífskjarasamningurinn náð að viðhalda hér verðstöðugleika, en þrátt fyrir lífskjarasamninganna hefur verðbólgan haldist lág eða um 3%

Að lokum er rétt að benda á loforð ríkis-og sveitarfélaga sem var til að styðja við samninginn um að hækka ekki gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á næsta ári, ásamt því að lækka tekjuskatt um 21 milljarð á tveimur árum sem kemur tekjulægsta fólkinu hvað best og einnig að lækka tryggingargjaldið til að styðja við atvinnulífið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: